varamaður tekur þingsæti.
Borist hefur bréf frá þingflokksformanni Hreyfingarinnar Margréti Tryggvadóttur um að Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykv. s., sé erlendis í einkaerindum og geti ekki sótt þingfundi. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hennar, Baldvin Jónsson.
Kjörbréf Baldvins Jónssonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt. Hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni, skv. 2. mgr. 1. gr. þingskapa.
[Baldvin Jónsson, 9. þm. Reykv. s., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]