139. löggjafarþing — 10. fundur, 14. okt. 2010.
frestur til að skila erindum til fjárlaganefndar.
Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á þessum málflutningi. Þannig er að umsóknarfresturinn 15. september var samþykktur í fjárlaganefnd. (HöskÞ: Þetta er ný framkvæmd.) Það hefur ekki komið fram tillaga um að virða ekki samþykkta fresti í fjárlaganefnd. [Hlátur í þingsal.]