Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 302. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 454  —  302. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á ýmsum lögum vegna sameiningar ráðuneyta, sbr. lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 73/1969, með síðari breytingum.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Pál Þórhallsson og Unni Kristínu Sveinbjarnardóttur frá forsætisráðuneyti.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á heitum ráðherra og ráðuneyta í ýmsum lögum til samræmis við nýsamþykkt lög nr. 121/2010, um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, sem mæla fyrir um stofnun innanríkisráðuneytis á grunni dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, og stofnun velferðarráðuneytis á grunni félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis.
    Nefndin fjallaði um frumvarpið sem felur ekki í sér efnislegar breytingar eða tilfærslu verkefna milli ráðuneyta. Innanríkisráðuneytið fær öll verkefni dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og velferðarráðuneytið fær öll verkefni félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Vigdís Hauksdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Þór Saari, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur álitinu.

Alþingi, 3. des. 2010.



Róbert Marshall,


form., frsm.


Atli Gíslason.


Mörður Árnason.



Birgir Ármannsson.


Valgerður Bjarnadóttir.


Álfheiður Ingadóttir.



Sigurður Kári Kristjánsson.


Þráinn Bertelsson.