Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 684. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1392  —  684. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Serbíu og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Lýðveldisins Serbíu.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Hauk Ólafsson, Maríu Erlu Marelsdóttur og Ragnar G. Kristjánsson frá utanríkisráðuneytinu.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar tveggja samninga. Annars vegar er um að ræða fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Lýðveldisins Serbíu sem undirritaður var 17. desember 2009 í Genf og hins vegar landbúnaðarsamning milli Íslands og Lýðveldisins Serbíu sem undirritaður var sama dag.
    Fríverslunarsamningurinn við Serbíu er af svokallaðri fyrstu kynslóð fríverslunarsamninga og nær yfir vöruviðskipti. Í samningnum eru jafnframt almenn ákvæði um vernd hugverka, fjárfestingar, þjónustuviðskipti og opinber innkaup.
    Landbúnaðarsamningurinn milli Íslands og Serbíu er viðbótarsamningur og gerður með vísan til fríverslunarsamninganna. Viðskipti með óunnar landbúnaðarvörur falla undir landbúnaðarsamninginn, en í tilviki Serbíu veitist Íslandi niðurfelling tolla af vatni, lifandi hrossum og hangikjöti. Tollar á lambakjöti lækka um helming, úr 30% niður í 15%, auk magntolls. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að líkt og á Íslandi er lambakjötsframleiðsla mikil í Serbíu og greinin viðkvæm fyrir utanaðkomandi samkeppni.
Vöruútflutningur til Serbíu var nokkur á síðasta ári og nam 670 millj. kr. – mest fyrir sjávarafurðir og lyf. Með fríverslunarsamningnum fella EFTA-ríkin niður tolla af iðnaðarvörum og sjávarafurðum frá og með gildistöku samningsins. Af hálfu Serbíu falla tollar á iðnaðarvörum niður frá gildistöku samningsins í skrefum en Serbía fær aðlögunartíma til ársins 2014 á hluta sjávarafurða.
    Fríverslunar- og landbúnaðarsamningarnir eru mikilvægir til að bæta aðgang fyrirtækja í EFTA-ríkjunum, þar á meðal íslenskra fyrirtækja, að mörkuðum Serbíu. Með samningunum verður dregið úr viðskiptahindrunum eða þær afnumdar og því mun samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja batna í Serbíu.
Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
Björgvin G. Sigurðsson og Ólöf Nordal voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 9. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Birgitta Jónsdóttir.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.



Helgi Hjörvar.


Jón Gunnarsson.


Valgerður Bjarnadóttir.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.