Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 680. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1488  —  680. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2011.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas Heiðar frá utanríkisráðuneytinu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til ríkisstjórnarinnar um að staðfesta þrjá samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2011 sem gerðir voru í London 21. október 2010. Um er að ræða sameiginlega bókun milli Evrópusambandsins, Færeyja, Íslands, Noregs og Rússneska sambandsríkisins um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2011; samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2011; og samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2011.
    Með þessum árlegu fimmhliða samningum um norsk-íslenska síldarstofninn skiptast veiðiheimildir í sömu hlutföllum og gilt hafa frá árinu 2007. Vegna bágs ástands stofnsins er heildarafli minnkaður á milli ára og þar með veiðiheimildir allra samningsaðila.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Birgitta Jónsdóttir.


Bjarni Benediktsson.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Helgi Hjörvar.


Ólöf Nordal.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


Valgerður Bjarnadóttir.