Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 545. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1490  —  545. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 86/2009 um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bergþór Magnússon frá utanríkisráðuneyti og Kára Gunndórsson frá Neytendastofu.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 86/2009, frá 3. júlí 2009, um breytingu á XIX. viðauka (Neytendavernd) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og til að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/122/EB frá 14. janúar 2009 um neytendavernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, samninga um orlofskosti til langs tíma, endursölu- og skiptasamninga. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES-samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 3. janúar 2010. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Markmiðið með tilskipuninni er samræming reglna á innri markaðnum hvað varðar vernd neytenda á tilteknum sviðum hennar auk þess sem gildissvið tilskipunarinnar er víkkað frá því sem áður var.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun fyrirhugað frumvarp innanríkisráðherra um breytingu á lögum um gerð samninga um hlutdeild í afnotarétti orlofshúsnæðis, nr. 23/1997, með síðari breytingum, fjalla um það efni. Að líkindum mun frumvarpið koma til meðferðar í allsherjarnefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Birgitta Jónsdóttir.


Bjarni Benediktsson.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Helgi Hjörvar.


Ólöf Nordal.



Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


Valgerður Bjarnadóttir.