Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 677. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Þskj. 1527  —  677. mál.




Nefndarálit



um till. til þál. um fullgildingu Singapúr-samnings um vörumerkjarétt.

Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Tómas Heiðar frá utanríkisráðuneyti og Jón Ögmund Þormóðsson frá efnahags- og viðskiptaráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á Singapúr-samningi um vörumerkjarétt sem var gerður á ríkjaráðstefnu á vegum Alþjóðahugverkastofnunarinnar (World Intellectual Property Organization, WIPO) um samþykkt endurskoðaðs samnings um vörumerkjarétt sem haldin var í Singapúr 13.–28. mars 2006.
    Í athugasemdum við tillöguna kemur fram að markmið samningsins er að koma á samræmdu alþjóðlegu skipulagi fyrir skráningu vörumerkja. Með samningnum er tekið tillit til breytinga sem orðið hafa í samskiptum og t.d. gert ráð fyrir að umsóknir um vörumerki geti verið með rafrænum hætti.
    Samningurinn tekur til allra merkja sem heimilt er að skrásetja í aðildarríkjum hans. Þetta er í fyrsta sinn sem óhefðbundin merki eru viðurkennd í alþjóðasamningi um vörumerki. Samningurinn tekur m.a. til heilmynda, mynda í þrívídd, litar, staðsetningar og hreyfingar merkja og einnig ósýnilegra merkja, svo sem hljóð-, lyktar-, bragð- og snertimerkja. Gert er m.a. kleift að tilgreina merkin með ljósmyndum.
    Með samningnum er komið á þingi aðildarríkja sem getur breytt reglugerðum sem settar eru á grundvelli samningsins. Þar með er komið á sveigjanleika í vernd vörumerkja þannig að auðveldara verður að bregðast við breyttum aðstæðum og nýrri þróun.
    Nefndinni er kunnugt um að samhliða þingsályktunartillögu þessari hefur efnahags- og viðskiptaráðherra flutt frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum, og er það til umfjöllunar í viðskiptanefnd.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Birgitta Jónsdóttir gerir fyrirvara við álitið. Fyrirvarinn lýtur að vörumerkjarétti á ósýnilegum óhefðbundnum hlutum eins og bragði, hljóði, lykt og snertingu.
    Björgvin G. Sigurðsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. maí 2011.



Árni Þór Sigurðsson,


form., frsm.


Valgerður Bjarnadóttir.


Birgitta Jónsdóttir,


með fyrirvara.



Bjarni Benediktsson.


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir.


Helgi Hjörvar.



Ólöf Nordal.


Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.