Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1768, 139. löggjafarþing 785. mál: almenn hegningarlög (refsing fyrir mansal).
Lög nr. 72 21. júní 2011.
Þingskjal 1768, 139. löggjafarþing 785. mál: almenn hegningarlög (refsing fyrir mansal).
Lög nr. 72 21. júní 2011.
Lög um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, með síðari breytingum (mansal).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 227. gr. a laganna:- Í stað orðanna „8 ára fangelsi“ í inngangsmálslið 1. mgr. kemur: 12 ára fangelsi.
- Í stað orðanna „skv. 226. gr.“ í 1. tölul. 1. mgr. kemur: skv. 1. mgr. 226. gr.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 10. júní 2011.