Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 299. máls.
139. löggjafarþing 2010–2011.
Prentað upp.

Þskj. 1831  —  299. mál.
Form.




Breytingartillögur


við frv. til l. um umhverfisábyrgð.

Frá meiri hluta umhverfisnefndar (MÁ, ÁI, ÓÞ, GLG, SkH, BirgJ).


     1.      1. gr. ásamt fyrirsögn orðist svo:

             Markmið. Mengunarbótareglan.

                 Markmið laga þessara er að tryggja að sá sem ber ábyrgð á umhverfistjóni af völdum atvinnustarfsemi eða yfirvofandi hættu á slíku tjóni komi í veg fyrir tjón eða bæti úr tjóni ef það hefur orðið, og beri kostnað af ráðstöfunum sem af því leiðir, í samræmi við mengunarbótareglu umhverfisréttar.
     2.      Við 3. gr.
                  a.      1. málsl. 1. tölul. orðist svo: Tjón á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum, þ.e. tjón sem hefur veruleg skaðleg áhrif á góða verndarstöðu tegundanna eða svæðanna eða torveldar verulega áform um að ná slíkri stöðu.
                  b.      Orðið „laganna í 2. málsl. 1. tölul. falli brott.
                  c.      1. mgr. 2. tölul. orðist svo:
                      Tjón á vatni, þ.e. tjón sem spillir vatnsgæðum með verulega skaðlegum áhrifum á vistfræðilegt ástand og vistmegin vatns, kemur í veg fyrir gott efnafræðilegt ástand vatns, eða breytir magnstöðu grunnvatns, samkvæmt skilgreiningum í lögum um stjórn vatnamála og reglugerðum settum samkvæmt þeim.
                  d.      A- og b-liður 2. mgr. 2. tölul. orðist svo:
                a.    ástæðuna fyrir því að ekki tókst að koma í veg fyrir að ástand yfirborðsvatnshlots eða grunnvatnshlots versnaði má rekja til breytinga, svo sem vegna mengunar eða í tengslum við loftslagsbreytingar, á vatnsgæðum, líffræðilegum, vatnsformfræðilegum eða eðlisefnafræðilegum eiginleikum yfirborðsvatnshlots eða á hæð grunnvatnshlots, eða
                b.    ný sjálfbær umsvif eða breytingar hafa í för með sér að ástand yfirborðsvatnshlots fer úr mjög góðu í gott.
                  e.      A–c-liður 3. mgr. 2. tölul. orðist svo:
                a.    gripið sé til allra ráðstafana sem raunhæfar teljast til að draga úr skaðlegum áhrifum á ástand vatnshlots,
                b.    tilgangur framkvæmdanna eða umsvifanna vega þyngra vegna almannaheilla, þar með talins ávinnings fyrir heilsu og öryggi manna, eða fyrir sjálfbæra þróun en ávinningur af því að umhverfismarkmið náist, og
                c.    tilgangi framkvæmdanna eða umsvifanna verður ekki með góðu móti náð með umhverfisvænni leiðum vegna tæknilegra erfiðleika eða óhóflegs kostnaðar.
     3.      Við 4. gr.
                  a.      Í stað orðsins „Lögin“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: Lög þessi.
                  b.      D-liður 1. mgr. orðist svo: starfsemi þar sem eina markmiðið er vernd gegn yfirvofandi eða yfirstandandi náttúruhamförum, eða.
                  c.      Í stað orðsins „samning“ í 1. og 2. tölul. e-liðar 1. mgr. komi: samnings.
                  d.      Í stað orðanna „er varða“ í fyrirsögn komi: um.
     4.      Í stað orðsins „Lögin“ í 5. gr. komi: Lög þessi.
     5.      6. gr. orðist svo:
                 Í lögum þessum er merking eftirfarandi orða og orðasambanda sem hér segir:
                  1.      Atvinnustarfsemi: Hvers kyns hagræn starfsemi, á vegum einkaaðila eða hins opinbera, í hagnaðarskyni eða ekki.
                  2.      Árósavatn: Vatn í nágrenni ármynnis, ísalt vegna nálægðar við strandsjó en undir verulegum áhrifum af aðstreymi ferskvatns.
                  3.      Endurheimt: Það ferli að koma náttúruauðlindum og/eða skertri þjónustu þeirra aftur í fyrra ástand, eða að fyrra ástand endurheimtist án afskipta mannsins (náttúruleg endurheimt).
                  4.      Fyrra ástand: Ástand náttúruauðlinda og vistkerfisþjónustu þeirra áður en tjón varð, metið á grundvelli bestu fáanlegra upplýsinga.
                  5.      Grunnvatn: Vatn, kalt eða heitt, sem er neðan jarðar í samfelldu lagi, kyrrstætt eða rennandi, og fyllir að jafnaði allt samtengt holrúm í viðkomandi jarðlagi.
                  6.      Losun: Beint eða óbeint útstreymi efna eða lífvera út í umhverfið af mannavöldum.
                  7.      Magnstaða: Mælikvarði á það hversu mikil áhrif, bein og óbein, vatnstaka hefur haft á grunnvatnshlot.
                  8.      Mengunarbótaregla: Greiðsluregla umhverfisréttar, sú meginregla að sá sem mengar beri að jafnaði þann kostnað sem hlýst af því að koma í veg fyrir mengun eða draga úr áhrifum vegna mengunar.
                  9.      Náttúruauðlindir: Verndaðar tegundir og náttúruverndarsvæði, vatn og land.
                  10.      Ráðstafanir til úrbóta: Hvers kyns aðgerðir eða röð aðgerða vegna tjóns á vatni eða vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum, þ.m.t. mildandi ráðstafanir eða bráðabirgðaráðstafanir, til að endurheimta fyrra ástand, lagfæra eða endurnýja náttúruauðlindir sem hafa orðið fyrir tjóni, og/eða skertar nytjar þeirra, en bjóða ella sambærilega kosti, eins og mælt er fyrir um í I. viðauka . Einnig hvers kyns aðgerðir vegna tjóns á landi við að fjarlægja mengandi efni eða lífverur og endurheimta fyrra ástand eða jafngildar aðgerðir.
                  11.      Rekstraraðili: Einstaklingur eða lögaðili sem ber ábyrgð á tiltekinni atvinnustarfsemi.
                  12.      Strandsjór: Yfirborðsvatn landmegin við línu sem dregin er einni sjómílu utan grunnlínu landhelginnar og nær inn að ytri mörkum árósavatns.
                  13.      Tjón: Mælanleg skaðleg breyting á náttúruauðlind eða mælanleg bein eða óbein skerðing á þjónustu náttúruauðlindar.
                  14.      Umhverfisverndarsamtök: Samtök sem hafa umhverfisvernd að meginmarkmiði og hafa minnst 30 félaga. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslu um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
                  15.      Útivistarsamtök: Samtök sem hafa útivist og umhverfisvernd að markmiði og hafa minnst 30 félaga. Þau skulu vera opin fyrir almennri aðild, gefa út ársskýrslu um starfsemi sína og hafa endurskoðað bókhald.
                  16.      Varnarráðstafanir: Hvers kyns ráðstafanir sem eru gerðar í þeim tilgangi að koma í veg fyrir eða lágmarka tjón, þegar atburður, aðgerð eða aðgerðaleysi hefur leitt til yfirvofandi hættu á umhverfistjóni.
                  17.      Vatn: Yfirborðsvatn og grunnvatn.
                  18.      Vatnshlot: Eining vatns, svo sem allt það vatn sem er að finna í stöðuvatni, á eða strandsjó.
                  19.      Verndaðar tegundir og náttúruverndarsvæði:
                      a.      Tegundir villtra fugla og villtra spendýra sem eru friðaðar samkvæmt lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum og tegundir vatnafiska sem njóta verndar samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði.
                      b.      Lífverur, búsvæði þeirra, vistgerðir og vistkerfi sem friðlýst eru samkvæmt lögum um náttúruvernd.
                      c.      Friðlýst svæði samkvæmt lögum um náttúruvernd, þ.e. þjóðgarðar, friðlönd, fólkvangar og náttúruvætti.
                      d.      Afmörkuð svæði á landi og sjó sem njóta verndar samkvæmt sérstökum lögum vegna náttúru eða landslags.
                      e.      Lífverur, vistgerðir þeirra, vistkerfi og búsvæði, önnur svæði og náttúrumyndanir sem eru á náttúruminjaskrá, sbr. 67. gr. náttúruverndarlaga.
                  20.      Vistgerð: Staður eða svæði með ákveðnum einkennum, t.d. hvað varðar gróður- og dýralíf, jarðveg og loftslag.
                  21.      Yfirborðsvatn: Kyrrstætt eða rennandi vatn, straumvötn, stöðuvötn, lón, árósavatn og strandsjór, auk jökla.
                  22.      Yfirvofandi hætta: Það ástand að verulegar líkur eru á umhverfistjóni í náinni framtíð.
                  23.      Þjónusta náttúruauðlindar: Vistkerfisþjónusta hennar, eiginleikar eða virkni sem hún býr yfir og nýtast annarri náttúruauðlind eða eru almenningi til hagsbóta með öðrum hætti.
     6.      Við 7. gr.
                  a.      1. málsl. 1. mgr. orðist svo: Ákvörðun um hvort umhverfistjón skv. 1. tölul. 3. gr. hefur orðið eða yfirvofandi hætta á slíku tjóni hefur skapast skal tekin með hliðsjón af mati á verndarstöðu tegundar eða svæðis fyrir tjón, þjónustu tegundar eða svæðis, og getu tegundar eða svæðis til náttúrulegrar endurnýjunar.
                  b.      Í stað orðanna „á fyrra ástandi“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: frá fyrra ástandi.
                  c.      B-liður 1. mgr. orðist svo: það hlutverk sem viðkomandi einstaklingar tegundarinnar eða hið skaðaða svæði gegna gagnvart tegundinni eða varðveislu svæðisins, og hversu sjaldgæf tegundin eða svæðið er.
                  d.      B-liður 3. mgr. orðist svo: sveiflur sem stafa af náttúrulegum orsökum eða íhlutun í tengslum við stjórnun svæða sem falla undir b–e-liði 19. tölul. 6. gr.
                  e.      C-liður 3. mgr. orðist svo: tjón á tegundum eða svæðum sem staðfest hefur verið að bætist við náttúrulega endurheimt á skömmum tíma.
                  f.      Í stað „14. tölul. 6. gr.“ í 4. mgr. komi: 19. tölul. 6. gr.
                  g.      Fyrirsögn orðist svo: Viðmiðanir við mat á tjóni eða yfirvofandi hættu á tjóni á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum.
     7.      Við 8. gr.
                  a.      Í stað orðanna „eða frekara tjón“ í 2. málsl. 1. mgr. komi: eða afstýra frekara tjóni.
                  b.      Í stað orðanna „sem hefur orðið“ í 2. málsl. 2. mgr. komi: sem þegar er orðið.
     8.      9. gr. ásamt fyrirsögn orðist svo:

             Aukið umhverfistjón eða bráðari hætta.

                 Þegar umhverfistjón sem rekja má til starfsemi rekstraraðila eykst, yfirvofandi hætta á umhverfistjóni verður bráðari, eða umhverfistjón verður þar sem hætta vofði yfir, skal rekstraraðilinn þegar í stað grípa til ráðstafana til að koma í veg fyrir eða takmarka frekara tjón, eða draga úr bráðari hættu.
                 Rekstraraðili skal þegar í stað tilkynna Umhverfisstofnun ef þegar orðið umhverfistjón eykst, yfirvofandi hætta á umhverfistjóni verður bráðari eða umhverfistjón verður þar sem hætti vofði yfir. Þegar um er að ræða atvinnurekstur sem er háður eftirliti heilbrigðisnefndar sveitarfélags skal Umhverfisstofnun tilkynna viðkomandi heilbrigðisnefnd um málið.
     9.      Við 10. gr.
                  a.      Í stað orðanna „fela ekki í sér takmörkun á skyldu“ komi: takmarka ekki skyldu.
                  b.      Í stað orðanna „aukningu umhverfistjóns“ komi: aukið umhverfistjón.
     10.      Við 11. gr.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                      Umhverfisstofnun metur hvort orðið eða yfirvofandi tjón er umhverfistjón eða yfirvofandi hætta á umhverfistjóni í skilningi laga þessara, og hver ber ábyrgð á því. Við matið skal stofnunin eftir atvikum leita umsagnar hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar, Náttúrufræðistofnunar Íslands, Veðurstofu Íslands, Veiðimálastofnunar, Landgræðslu ríkisins eða annarra sérfróðra aðila. Kalli beiðni um umsögn að mati Umhverfisstofnunar á sérstaka úttekt af hálfu umsegjanda er henni heimilt að greiða umsegjandanum kostnað vegna úttektarinnar samkvæmt sérstökum samningi. Umhverfisstofnun skal innheimta þennan kostnað hjá rekstraraðila.
                  b.      Í stað orðsins „laganna“ í 1. málsl. og a-lið 2. mgr. komi: laga þessara.
                  c.      Í stað orðsins „sé“ í a-lið 2. mgr. komi: er.
     11.      Við 12. gr.
                  a.      1. málsl. orðist svo: Umhverfisstofnun er heimilt að gefa rekstraraðila sem ábyrgð ber samkvæmt lögum þessum fyrirmæli um að veita upplýsingar og standa fyrir rannsóknum sem hafa þýðingu við mat á því hvernig unnt er að bæta úr umhverfistjóni eða koma í veg fyrir umhverfistjón.
                  b.      Í stað orðanna „greiningar og mælingar“ í 3. málsl. komi: greiningu og mælingu.
     12.      Við 13. gr.
                  a.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: lögum þessum.
                  b.      Í stað orðanna „takmarka eða koma í veg fyrir frekara umhverfistjón“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: koma í veg fyrir frekara umhverfistjón eða takmarka það.
     13.      Við 14. gr.
                  a.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. og 2. mgr. komi: lögum þessum.
                  b.      Í stað orðanna „framkvæma jafngildar ráðstafanir í samræmi við I. viðauka“ í 2. mgr. komi: gera jafngildar ráðstafanir.
     14.      15. gr. orðist svo:
                 Hafi orðið fleiri en eitt umhverfistjón og ekki er unnt að bæta úr þeim samtímis skv. 14. gr. ákveður Umhverfisstofnun úr hvaða umhverfistjóni skuli fyrst bætt, m.a. að teknu tilliti til eðlis umhverfistjóns, útbreiðslu þess og skaða af því, möguleika á náttúrulegri endurnýjun og hættu fyrir heilsufar manna.
     15.      Við 16. gr.
                  a.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. mgr. komi: lögum þessum.
                  b.      2. og 3. mgr. orðist svo:
                      Ef sá sem ábyrgð ber samkvæmt lögum þessum hefur ekki umráð eignar þar sem umhverfistjón verður eða yfirvofandi hætta er á umhverfistjóni getur sá sem umráðin hefur þurft að sæta fyrirmælum Umhverfisstofnunar um að þola að fram fari rannsóknir, varnarráðstafanir og úrbætur á vegum þess sem ábyrgð ber á umhverfistjóninu eða hinni yfirvofandi hættu á umhverfistjóni.
                      Þegar ráðstafanir samkvæmt lögum þessum leiða til tjóns á eign þriðja manns getur eigandi eða afnotahafi eignarinnar gert skaðabótakröfu á hendur ríkissjóði ef ekki næst samkomulag við tjónvald um bætur eða þegar tjónvaldur getur ekki greitt bótakröfuna.
     16.      Í stað orðanna „Í því tilviki að“ í 2. málsl. 3. mgr. 17. gr. komi: Ef.
     17.      Við 18. gr.
                  a.      Orðin „boðuð eða gefin“ í 1., 2., 3. og 4. mgr. falli brott.
                  b.      Í stað orðsins „fyrirmæli“ í 1. mgr. komi: fyrirmæli skv. 12.–14. gr.
                  c.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. mgr. komi: lögum þessum.
     18.      Við 20. gr.
                  a.      Í stað orðanna „framkvæma ber“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: honum eru faldar.
                  b.      Orðin „samkvæmt lögum“ í 2. málsl. 1. mgr. falli brott.
                  c.      Í stað orðanna „tjóni hafi verið valdið af þriðja aðila“ í a-lið 2. mgr. komi: þriðji aðili hafi valdið tjóninu.
                  d.      Í stað orðanna „gefin eru vegna losunar eða annars atviks“ í b-lið 2. mgr. komi: gefin voru vegna losunar eða annars atburðar.
                  e.      Í stað orðanna „því hafi verið valdið“ í 3. mgr. komi: það hafi ekki orðið.
     19.      Við 21. gr.
                  a.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. mgr. komi: lögum þessum.
                  b.      Í stað orðanna „tryggingu, þegar“ í 3. mgr. komi: tryggingu þegar.
     20.      Við 22. gr.
                  a.      Í stað orðsins „laganna“ í 2. málsl. komi: laga þessara.
                  b.      Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Í samningnum skal m.a. kveðið á um greiðslur til heilbrigðisnefndar vegna eftirlitsins.
     21.      Við 23. gr.
                  a.      Í stað orðsins „framkvæma“ komi: gera.
                  b.      Í stað orðsins „lögunum“ komi: lögum þessum.
     22.      Við 24. gr.
                  a.      Í stað orðsins „laganna“ í 1. mgr. komi: laga þessara.
                  b.      1. málsl. 2. mgr. orðist svo: Umhverfisstofnun skal heimill aðgangur að lóðum, mannvirkjum og farartækjum í eigu rekstraraðila án dómsúrskurðar til eftirlits eða annarra verkefna samkvæmt lögum þessum.
                  c.      3. mgr. orðist svo:
                      Umhverfisstofnun getur ef þörf krefur leitað aðstoðar lögreglu við að beita heimildum skv. 2. mgr.
     23.      Í stað orðsins „lögunum“ í 1. málsl. 28. gr. komi: lögum þessum.
     24.      2. málsl. 1. mgr. 29. gr. falli brott.
     25.      Við 30. gr.
                  a.      Í stað orðanna „af ráðstöfunum skv. 1. mgr. 23. gr.“ í 1. málsl. 1. mgr. komi: við ráðstafanir skv. 23. gr.
                  b.      Í stað orðanna „eftir að losun eða annar atburður varð“ í 3. mgr. komi: eftir losun eða annan atburð.
     26.      Í stað orðanna „Lögin“ í 31. gr. komi: Lög þessi.
     27.      3. tölul. 3. mgr. 32. gr. orðist svo: Umhverfisverndarsamtök og útivistarsamtök, enda samrýmist það tilgangi þeirra að gæta þeirra hagsmuna sem kæran lýtur að.
     28.      Í stað orðanna „skulu þau varða“ í 2. málsl. 1. mgr. 33. gr. komi: varða þau.
     29.      Í stað orðanna „Lög þessi fela í sér innleiðingu á“ í 34. gr. komi: Með lögum þessum er innleidd.
     30.      Við 35. gr.
                  a.      Í stað orðanna „öðlast þegar gildi“ í 1. mgr. komi: öðlast gildi 1. janúar 2012.
                  b.      Í stað „14. tölul. 6. gr.“ í 4. mgr. komi: 19. tölul. 6. gr.
     31.      I. og II. viðauki orðist svo:

I. VIÐAUKI
Úrbætur vegna umhverfistjóns á vatni og vernduðum tegundum
og náttúruverndarsvæðum.

             Í þessum viðauka eru sameiginleg rammaákvæði sem fylgja ber með það að markmiði að velja heppilegustu ráðstafanirnar til að tryggja úrbætur vegna umhverfistjóns.
        1.    Úrbætur vegna umhverfistjóns á vatni, vernduðum tegundum eða náttúruverndarsvæðum felast í því að koma umhverfinu aftur í fyrra ástand sitt með því að gera á því frumúrbætur, fyllingarúrbætur eða jöfnunarúrbætur sem eru skilgreindar svo:
            a.    „frumúrbætur“: Ráðstafanir sem koma náttúruauðlind sem orðið hefur fyrir tjóni, og/eða skertri þjónustu náttúruauðlindar, aftur í fyrra ástand eða í átt til þess,
            b.    „fyllingarúrbætur“: Ráðstafanir sem gripið er til í tengslum við náttúruauðlind og/eða þjónustu náttúruauðlindar til að bæta það upp að frumúrbæturnar nægja ekki til að koma náttúruauðlind sem orðið hefur fyrir tjóni og/eða þjónustu hennar að fullu í fyrra horf,
            c.    „jöfnunarúrbætur“: Aðgerðir til að bæta upp tímabundið tap á náttúrulegri auðlind og/eða þjónustu náttúruauðlindar frá því að tjón verður og þar til árangur af frumúrbótum hefur náðst að fullu. „Tímabundið tap“ telst tap sem er afleiðing þess að náttúruauðlind eða þjónusta náttúruauðlindar, sem hefur orðið fyrir tjóni, getur ekki gegnt vistfræðilegu hlutverki sínu eða nýst fyrir aðrar náttúruauðlindir eða almenning fyrr en frum- eða fyllingarúrbætur eru að fullu komnar til framkvæmda. Slíkt tap leiðir ekki til fébóta til almennings.
                 Ef ekki næst að koma umhverfinu aftur í fyrra ástand sitt með frumúrbótum skal grípa til fyllingarúrbóta. Auk þess skal tímabundið tap bætt upp með jöfnunarúrbótum.
                 Í úrbótum vegna umhverfistjóns á vatni, vernduðum tegundum eða náttúruverndarsvæðum felst einnig að útrýma allri umtalsverðri hættu á skaðlegum áhrifum á heilsufar manna.
        1.1.     Markmið með úrbótum.
            Tilgangurinn með frumúrbótum.
        1.1.1.    Tilgangurinn með frumúrbótum er að koma náttúruauðlindunum sem orðið hafa fyrir tjóni og/eða skertri þjónustu þeirra aftur í fyrra ástand eða í átt til þess.
            Tilgangurinn með fyllingarúrbótum.
        1.1.2.    Ef ekki er unnt að koma náttúruauðlindunum sem orðið hafa fyrir tjóni og/eða þjónustu náttúruauðlinda í fyrra ástand sitt er gripið til fyllingarúrbóta. Tilgangurinn með fyllingarúrbótum er að sjá til þess að náttúruauðlind og/eða þjónusta náttúruauðlindar, þ.m.t. ef við á náttúruauðlind á öðrum stað en tjónið varð, sé á svipuðu stigi og verið hefði ef svæðinu sem orðið hefur fyrir tjóni hefði verið komið aftur í fyrra ástand. Ef unnt er og við á skal hinn staðurinn vera í landfræðilegum tengslum við staðinn sem orðið hefur fyrir tjóni, með hliðsjón af hagsmunum þeirra íbúa sem málið varðar helst.
            Tilgangurinn með jöfnunarúrbótum.
        1.1.3.    Beita skal jöfnunarúrbótum til að jafna upp tímabundið tap á náttúruauðlind og þjónustu náttúruauðlindar meðan þess er beðið að þær jafni sig. Í þessum úrbótum felast frekari endurbætur á vernduðum tegundum og náttúruverndarsvæðum eða vatni, annaðhvort á staðnum sem orðið hefur fyrir tjóni eða á öðrum stað. Slíkt tap leiðir ekki til fébóta til almennings.
        1.2.     Ákvörðun um ráðstafanir til úrbóta.
            Ákvörðun ráðstafana til frumúrbóta.
        1.2.1.    Skoða skal kosti um aðgerðir sem standa til boða í því skyni að koma náttúruauðlindinni og þjónustu náttúruauðlindar strax í átt að fyrra ástandi sínu með flýtiferli eða með náttúrulegri endurheimt.
            Ákvörðun ráðstafana til fyllingar- og jöfnunarúrbóta.
        1.2.2.    Þegar umfang ráðstafana til fyllingar- og jöfnunarúrbóta er ákvarðað skal fyrst skoða notkun aðferða þar sem fundin eru jafngildi með því að bera eina auðlind saman við aðra auðlind og þjónustu einnar náttúruauðlindar saman við þjónustu annarrar. Samkvæmt þessum aðferðum skal fyrst vega og meta aðgerðir sem gefa af sér náttúruauðlindir og/eða þjónustu af sömu tegund, gæðum og umfangi og þær sem urðu fyrir tjóni. Verði þessu ekki komið við skal sjá til þess að völ sé á öðrum náttúruauðlindum og/eða þjónustu þeirra í staðinn. Sem dæmi má nefna að skert gæði skal vega upp með því að auka umfang ráðstafana til úrbóta.
        1.2.3.    Ef ekki er unnt að nota fyrsta kostinn, jafngildisaðferðina þar sem ein auðlind er borin saman við aðra og þjónusta einnar við þjónustu annarrar, skal nota annars konar matsaðferðir. Umhverfisstofnun getur fyrirskipað hvaða aðferð skuli notuð til að ákvarða umfang nauðsynlegra ráðstafana til fyllingar- og jöfnunarúrbóta, t.d. fjárhagslegt mat. Ef unnt er að meta auðlindina sem glataðist, og/eða þjónustu hennar, en ekki er unnt, innan eðlilegra tímamarka eða með eðlilegum kostnaði, að meta auðlindina og/eða þjónustuna sem kemur í staðinn getur Umhverfisstofnun valið ráðstafanir til úrbóta þar sem kostnaðurinn jafngildir áætluðu, fjárhagslegu virði náttúruauðlindarinnar og/eða þjónustunnar sem glataðist. Þegar ákveðnar eru fyllingar- og jöfnunarúrbætur skal við ráðstafanir til að nýta aðrar náttúruauðlindir og/eða þjónustu þeirra tekið tillit til forgangsraðar í tíma og heppilegrar tímasetningar. Sem dæmi má nefna að því lengri tíma sem það tekur að ná fyrra ástandi, þeim mun meira hlýtur (að öðru jöfnu) að verða umfang þeirra ráðstafana til jöfnunarúrbóta sem gera þarf.
        1.3.     Val á kostum til úrbóta.
        1.3.1.    Meta skal eðlilega kosti til úrbóta með bestu fáanlegri tækni og á grundvelli eftirfarandi viðmiðana, sem eru:
                       áhrif hvers kostar á lýðheilsu og almannaöryggi,
                       kostnaður af því að hrinda viðkomandi kosti í framkvæmd,
                       líkurnar á að hver kostur fyrir sig skili árangri,
                       að hve miklu leyti hver kostur kemur í veg fyrir tjón í framtíðinni og að hve miklu leyti framkvæmd þessa kostar kemur í veg fyrir frekara tjón,
                       að hve miklu leyti hver kostur gagnast mismunandi þáttum náttúruauðlindarinnar og/eða þjónustu hennar,
                       að hve miklu leyti hver kostur tekur mið af félagslegum, efnahagslegum og menningarlegum sjónarmiðum sem skipta máli og öðrum þáttum sem skipta máli og eru einkennandi fyrir viðkomandi stað,
                       hversu langur tími líður þar til úrbæturnar hafa skilað árangri,
                       að hve miklu leyti hver kostur dugir til að koma í samt lag svæðinu þar sem umhverfistjónið varð,
                       landfræðileg tengsl við staðinn sem orðið hefur fyrir tjóni.
        1.3.2.    Við mat á þeim kostum til úrbóta sem koma til greina má velja ráðstafanir til frumúrbóta sem koma vatni, vernduðum tegundum eða náttúruverndarsvæðum, sem hafa orðið fyrir tjóni, ekki að fullu í fyrra ástand sitt eða eru lengur en ella að ná fyrra ástandi. Einungis má taka slíka ákvörðun ef náttúruauðlindirnar og/eða þjónusta náttúruauðlindar, sem fara forgörðum á upprunalega staðnum vegna þessarar ákvörðunar, eru bættar upp með því að auka fyllingar- og jöfnunaraðgerðir þannig að til verði svipaðar náttúruauðlindir og/eða þjónusta og þær sem fóru forgörðum. Þetta á t.d. við þegar unnt er að sjá fyrir jafngildum náttúruauðlindum og/eða þjónustu þeirra annars staðar með minni tilkostnaði. Þessar viðbótarráðstafanir til úrbóta skulu ákveðnar í samræmi við reglurnar sem settar eru fram í lið 1.2.2.
        1.3.3.    Þrátt fyrir reglurnar sem settar eru fram í lið 1.3.2 og í samræmi við 14. gr. hefur Umhverfisstofnun rétt til að ákveða að ekki skuli gera frekari ráðstafanir til úrbóta ef:
            a.    þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið tryggja að ekki sé lengur fyrir hendi veruleg hætta á því að heilsufar manna, vatn, verndaðar tegundir eða náttúruverndarsvæði verði fyrir skaðlegum áhrifum,
            b.    kostnaðurinn við þær ráðstafanir sem gera þarf til að ná fyrra ástandi eða svipuðu ástandi er óhóflegur miðað við ávinninginn af þeim fyrir umhverfið.
        

II. VIÐAUKI
Starfsemi sem um getur í 1. mgr. 2. gr.

              1.      Starfsleyfisskyldur atvinnurekstur á grundvelli 5. gr. a og 6. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir, þar sem gerð er krafa um samþættar mengunarvarnir, sbr. I. viðauka reglugerðar um starfsleyfi sem haft getur í för með sér mengun.
              2.      Losun efna í vatn (grunnvatn og yfirborðsvatn) sem er háð leyfi eða skráningu og leyfisskyld vatnstaka og vatnsmiðlun.
              3.      Framleiðsla efna og efnablandna sem flokkast sem hættuleg efni, eiturefni, varnarefni eða sæfiefni, sbr. lög nr. 45/2008, um efni og efnablöndur, og lög nr. 52/1988, um eiturefni og hættuleg efni, notkun þeirra, geymsla, vinnsla, urðun, losun og flutningur.
              4.      Flutningur hættulegs eða mengandi farms á vegum, járnbrautum, skipgengum vatnaleiðum, á sjó eða í lofti, sbr. umferðarlög, nr. 50/1987, og reglugerð um flutning á hættulegum farmi sem sett er á grundvelli þeirra laga, eða lög nr. 41/2003, um vaktstöð siglinga, og reglugerð um vaktstöð siglinga og eftirlit með umferð skipa.
              5.      Starfsemi sem þarf leyfi til samkvæmt lögum nr. 18/1996, um erfðabreyttar lífverur.
              6.      Flutningur úrgangs milli landa, háður leyfi eða bannaður, sbr. ákvæði laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.