Vörumerki

Miðvikudaginn 18. janúar 2012, kl. 16:38:05 (3965)


140. löggjafarþing — 44. fundur,  18. jan. 2012.

vörumerki.

269. mál
[16:38]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 45/1997, um vörumerki, með síðari breytingum. Þetta er þskj. 296 og 269. mál. Frumvarp þetta er endurflutt með tiltölulega litlum breytingum frá 139. löggjafarþingi. Það felur í meginatriðum í sér þrenns konar breytingar á gildandi lögum um vörumerki. Í fyrsta lagi eru þar á ferð breytingar vegna fyrirhugaðrar aðildar að svonefndum Singapúrsamningi um vörumerkjarétt frá 2006 sem snertir samræmingu á formreglum um vörumerki. Aðrar breytingar eru til samræmis við norræna framkvæmd.

Þá eru lagðar til breytingar til að auka á skýrleika einstakra ákvæða og jafnvel breytt reglum sem tengjast Evrópska efnahagssvæðinu, einkum um svokallaða umboðsmannsskyldu.

Við gerð þessa frumvarps var haft samráð við Félag umboðsmanna vörumerkja og einkaleyfa. Þá var haft samráð við utanríkisráðuneytið um þýðingu á samningnum og við gerð þingsályktunartillögu varðandi heimild til fullgildingar hans sem samþykkt var á 139. löggjafarþingi. Lagði utanríkisráðherra þá tillögu fram og var samningurinn fylgiskjal með henni.

Alþjóðahugverkastofnunin, World Intellectual Property Organization – WIPO eins og það heitir, hefur umsjón með þessum Singapúrsamningi um vörumerkjarétt. Samningurinn var undirritaður 2006 og hefur Ísland meðal annarra ríkja undirritað hann. Hann öðlaðist gildi árið 2009. Efni samningsins varðar skilyrði um form og meðhöndlun vörumerkjaumsókna og skráninga. Stefnt er að samræmi í aðildarríkjum samningsins hvað snertir form umsókna, vörumerki og skráningu á þeim.

Þær breytingar sem lagt er til að verði gerðar í samræmi við efni samningsins eru meðal annars ívilnandi úrræði þegar tímamörk eru ekki virt og möguleiki á hlutun umsókna og skráninga. Í ársbyrjun 2011 höfðu 59 ríki undirritað samninginn, m.a. Ísland eins og áður kom fram, og 25 ríki hafa fullgilt hann, þar á meðal Danmörk.

Hvað snertir norræna framkvæmd eru lagðar til breytingar að fyrirmynd dönsku og norsku vörumerkjalaganna. Nefna má að gert er ráð fyrir að Einkaleyfastofan fái heimild til að fella niður skráningu vörumerkja í ákveðnum tilvikum. Af ákvæðum sem auka skýrleika gildandi lagaákvæða má nefna að tekið er fram berum orðum að ákvæði laganna taki ekki einungis til vöru heldur líka þjónustu.

Þá er gjaldtökuheimild gerð ítarlegri og skýrari, svo sem venja er með gjaldtökuheimildir í ýmsum öðrum lögum, t.d. lögum um einkaleyfi og lögum um hönnun, en þau lög eru á starfssviði Einkaleyfastofu.

Þá eru í 12. gr. frumvarpsins gerðar tillögur um breytingar á umboðsmannsskyldu. Er það talið stríða gegn reglum Evrópska efnahagssvæðisins og frjálsri þjónustu á milli ríkja þess ef í lögum er kveðið á um skyldu umboðsmanns vörumerkis til búsetu hér á landi. Lýtur breytingin að því að það nægi að umboðsmaðurinn sé búsettur á Evrópska efnahagssvæðinu, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, sem sagt á öllu hinu Evrópska efnahagssvæði og tengdum löndum í gegnum fríverslunarsamninga.

Samskipti umsækjenda og eigenda vörumerkja við Einkaleyfastofuna verða áfram á íslensku, en í undantekningartilvikum hefur stofan tekið við skjölum á erlendum tungumálum, svo sem framsölum, og er gert ráð fyrir að framkvæmdin verði óbreytt að því leyti.

Hvað athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins snertir má vekja athygli á nokkrum atriðum.

Í athugasemd við 1. gr. er tekið fram að krafan til sérkennis og aðgreinanleika vörumerkja taki einnig til þjónustu, ekki aðeins til vöru.

Í athugasemdum við 2. gr. er meðal annars fjallað um að sönnunarbyrði um að umsækjandi hafi verið í vondri trú hvíli á þeim sem andmælir skráningu.

Í athugasemdum við 3. gr. greinir frá því að umsækjandi eigi möguleika á að tjá sig um synjun, um skráningu umsóknar eða að lagfæra umsókn innan tiltekins frests. Jafnframt er þar vikið að því að ákvæði um endurupptöku séu nýmæli er tengist Singapúrsamningnum.

Í athugasemd við 4. gr er vikið að andmælum við skráningu vörumerkis innan tiltekins frests frá birtingu skráningar og í athugasemdum við 5. gr. um möguleika á hlutun umsókna og skráninga með tilliti til Singapúrsamningsins.

Þá er í athugasemdum við 6. gr. vikið að því nýmæli að Einkaleyfastofan geti samkvæmt frumvarpinu auk dómstóla fellt skráningu úr gildi. Þannig er stuðlað að því að vörumerkjaskráin hafi ekki að geyma fjölda skráðra vörumerkja sem ekki eru í notkun. Er þetta í samræmi við dönsk og norsk vörumerkjalög.

Í athugasemd við 13. gr. er fjallað um að ekki aðeins skuli vörumerkjaskrá vera aðgengileg almenningi eins og er í gildandi lögum, heldur skuli umsóknir og önnur móttekin gögn jafnframt vera aðgengileg almenningi, þó að undanskildum gögnum er varða viðskiptaleyndarmál, t.d. upplýsingar um greiðslu vegna kaupa á vörumerki.

Því má svo bæta við í lokin, frú forseti, að fjármálaráðuneytið telur í kostnaðarumsögn sinni að þessar breytingar muni ekki hafa áhrif á kostnað ríkissjóðs á viðkomandi sviði.

Því legg ég til að að lokinni þessari umræðu, virðulegur forseti, verði frumvarpinu vísað til 2. umr. og efnahags- og viðskiptanefndar.