140. löggjafarþing — 109. fundur, 30. maí 2012.
lengd þingfundar.
Frú forseti. Ég fylgi þeirri stefnu um fundarstjórn sem hv. þm. Birgir Ármannsson markaði á mjög farsælum forsetaferli sínum. Hv. þingmaður og minn ágæti þingflokksformaður kom hingað og sagði að hann vildi að fundur stæði fram á kvöld. Aldrei þessu vant er ég ósammála hv. þingmanni. Ég greiði atkvæði með því að fundur standi að minnsta kosti fram í fyrramálið.