140. löggjafarþing — 114. fundur, 7. júní 2012.
veiðigjöld.
658. mál
Hv. þingmaður ætlaði að ræða um fundarstjórn forseta en þessi ræða var varla um fundarstjórn forseta. Ég ætla að biðja (Gripið fram í.) hv. þingmenn að ræða um fundarstjórn forseta á þessum tíma þegar klukkan er að verða 1.30. (VigH: Alveg sjálfsagt.) Forseti hugðist fara að ljúka þessum fundi þannig að ég bið hv. þingmenn um að halda sig við fundarstjórn forseta.