140. löggjafarþing — 117. fundur, 9. júní 2012.
fundarstjórn.
Allt er þetta satt og rétt sem hv. þingmaður segir og forseti vill ítreka að hæstv. fjármálaráðherra kom hingað til fundar og var við þessa umræðu í morgun og hefur væntanlega hlýtt á orð og fyrirspurnir hv. þingmanna. Eins og forseti tók fram áðan lifir enn talsvert af þessari umræðu og munu þá væntanlega gefast tækifæri til að sinna þeim svörum.