140. löggjafarþing — 28. fundur, 29. nóv. 2011.
lengd þingfundar.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa um lengd þingfunda er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um, ef á þarf að halda, til að ljúka megi 2. umr. um fjárlög 2012. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta? Svo er ekki og þá skoðast hún samþykkt.