Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 345. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 511  —  345. mál.

2. umræða.


Nefndarálit



um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vitamál,
nr. 132/1999, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Friðfinn Skaftason frá innanríkisráðuneytinu.
    Frumvarpið felur í sér hækkun vitagjalds í samræmi við verðlagsbreytingar frá síðustu hækkun gjaldsins, um 5% í 136,62 kr., og að lágmarksgjald verði einnig hækkað um 5%, þ.e. í 5.145 kr. úr 4.900 kr. Gjaldtakan snertir skip sem sigla við strendur landsins og hafa viðkomu í höfnum landsins. Gjaldtökunni er ætlað að standa straum af kostnaði við rekstur og framkvæmdir á vegum Siglingastofnunar Íslands.
    Meiri hlutinn áréttar mikilvægi þess að gjaldskrár séu uppfærðar reglulega í samræmi við verðlagsþróun. Vitagjald var síðast hækkað árið 2009 en þá hafði það ekki hækkað í sjö ár, sbr. lög nr. 142/2002. Meiri hlutinn vill einnig gera athugasemd við málsmeðferð frumvarpsins. Hinn 6. desember sl. var frumvarp til fjárlaga 2012 samþykkt sem lög á Alþingi en þar er gert ráð fyrir þessum auknu tekjum til handa ríkissjóði. Meiri hlutinn bendir á að hækkanir á gjaldtöku eins og frumvarpið felur í sér eiga að fá faglega umfjöllun hjá þeirri nefnd sem málinu er vísað til áður en það er samþykkt í fjárlögum næsta árs.
    Þór Saari áheyrnarfulltrúi er ekki samþykkur áliti þessu.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 12. desember 2011.



Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,


form., frsm.


Ólína Þorvarðardóttir.


Þuríður Backman.



Mörður Árnason.


Róbert Marshall.


Atli Gíslason.