Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 403. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 709  —  403. mál.

Fyrri umræða.


Tillaga til rökstuddrar dagskrár



í málinu: Tillaga til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra.

Frá Magnúsi Orra Schram, Eygló Harðardóttur,
Birgittu Jónsdóttur og Lilju Rafneyju Magnúsdóttur.


    Með hliðsjón af eftirfarandi:
          Alþingi fer með ákæruvald í málum vegna embættisbrota ráðherra. Ákvörðun þess sem fer með almennt ákæru- eða saksóknarvald um að fella niður ákæru verður að byggjast á málefnalegum rökum. Þetta leiðir af grunnreglum stjórnsýslunnar. Alþingi er á sama hátt bundið af sjónarmiðum um málefnalegar forsendur. Niðurfelling ákæru mundi fyrst og fremst eiga við ef í ljós kæmi að við útgáfu ákæru hefði verið byggt á röngum forsendum í grundvallaratriðum eða fram kæmu nýjar upplýsingar sem röskuðu grundvelli máls.
          Ákæruvaldi Alþingis í málum vegna meintra brota ráðherra í embætti er þannig fyrir komið að eftir að þingið hefur ákveðið að gefa út ákæru er áframhaldandi umsjón saksóknarvaldsins falin saksóknara þingsins. Verði slíkur saksóknari þess áskynja að málshöfðun sé byggð á röngum forsendum í grundvallaratriðum væri honum rétt að beina því til þingsins að fella hana niður af þeim sökum.
          Í því máli sem hér um ræðir hefur ekki orðið neinn sá forsendubrestur sem réttlætir að fallið verði frá málinu. Engin slík beiðni hefur borist, hvorki frá saksóknara Alþingis né Landsdómi. Landsdómur hefur hins vegar hafnað með úrskurði kröfu um að vísa málinu frá í heild og standa því eftir fjögur atriði málshöfðunarinnar af sex óhögguð,
    samþykkir Alþingi að málinu verði vísað frá og tekið verði fyrir næsta mál á dagskrá.