Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 651. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1261  —  651. mál.




Svar



iðnaðarráðherra við fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar
um áhrif ESB á umræður um ESB-aðild.


     1.      Hver er skoðun ráðherra á því að ESB, með fjármunum og þátttöku sendiherra og sendiráðs, blandar sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Hvorki sendiherra ESB né nokkur annar á vegum ESB hefur blandað sér í málefni ráðuneytisins, hvorki með beinum né óbeinum hætti. Samskipti ráðuneytisins við sendiráðið eru fundir sem haldnir eru tvisvar á ári með fulltrúum sendiráðsins til að ræða framvindu við þá kafla sem tengjast aðildarumsókninni og ráðuneytið ber ábyrgð. Þetta eru kaflar 15 um orkumál og 20 um iðnað og nýsköpun. Þá tekur ráðuneytið virkan þátt í vinnu við kafla 22 um byggðamálefni sem utanríkisráðuneyti er í forustu fyrir. Iðnaðarráðuneytið hefur með þátttöku sinni kynnst löggjöf ESB í þessum málaflokkum sem styrkt hefur faglegan grundvöll þess – til að takast á við dagleg störf, einkum sem tengjast tæknilegum atriðum við stefnumótun og áætlanagerð.

     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið?
    Ráðuneytið tekur ekki þátt í pólitískri umræðu um ESB. Það er mat ráðuneytisins að hin faglega vinna sem tengist aðildarumsókninni muni nýtast vel við að bæta verklag og dýpka þekkingu á málaflokkum ráðuneytisins – hvort sem af aðild verður eða ekki.