141. löggjafarþing — 19. fundur, 16. okt. 2012.
tilkynning um skriflegt svar.
Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá velferðarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 170, um úrskurðarnefndir, frá Atla Gíslasyni. Ráðuneytið tilkynnir að erfiðleikar hafi komið upp við úrvinnslu gagna vegna fyrirspurnarinnar og því sé þess farið á leit við forseta Alþingis að velferðarráðherra geti fengið frest til 24. október næstkomandi til að svara fyrirspurninni.