Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 479. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 766  —  479. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um vegabréf, nr. 136/1998,
með síðari breytingum (gildistími almenns vegabréfs).

(Eftir 2. umræðu, 19. desember.)


1. gr.


    Í stað fyrri málsliðar 2. mgr. 6. gr. laganna koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Gildistími almenns vegabréfs er tíu ár frá útgáfudegi en fimm ár fyrir börn yngri en 18 ára. Heimilt er að lengja þann tíma eftir því sem ákveðið er í reglugerð.

2. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. mars 2013.