Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 583. máls.
141. löggjafarþing 2012–2013.
Þingskjal 1275  —  583. mál.

2. umræða.


Nefndarálit með breytingartillögu



um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Þjóðminjasafn Íslands,
nr. 140/2011 (samstarf við Háskóla Íslands).


Frá allsherjar- og menntamálanefnd.



    Nefndin fékk á sinn fund Magnús Lyngdal Magnússon og Jón Vilberg Guðjónsson frá mennta- og menningarmálaráðuneyti og Valdimar Tr. Hafstein frá félagsvísindasviði Háskóla Íslands til að kynna frumvarpið og svara spurningum nefndarmanna. Nefndinni bárust umsagnir frá Háskóla Íslands, félagsvísindasviði Háskóla Íslands, Íslenskri málnefnd, Rannsóknasetri í safnafræðum og Þjóðminjasafni Íslands. Einnig barst nefndinni minnisblað frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu.
    Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að Þjóðminjasafn Íslands og Háskóli Íslands hafa átt með sér margháttað samstarf í langri sögu stofnananna. Í september 2012 var ákveðið, að höfðu samráði við þjóðminjavörð og háskólarektor, að skipa nefnd sem ætlað var það hlutverk að koma fram með tillögur um hvernig efla mætti faglegt samstarf á milli Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns Íslands. Nefndin, sem skipuð var fulltrúum frá ráðuneytinu, Háskóla Íslands og Þjóðminjasafni Íslands, lagði til að lögum um Þjóðminjasafn Íslands yrði breytt svo sem kemur fram í frumvarpstexta. Verði frumvarpið að lögum verður rannsóknarhlutverk Þjóðminjasafnsins styrkt, það skilgreint sem háskólastofnun, sérstakar rannsóknarstöður við safnið lögfestar og akademískir starfsmenn þess tengdir með beinum hætti við rannsóknir og kennslu Háskóla Íslands.
    Umsagnaraðilar eru almennt mjög jákvæðir gagnvart frumvarpinu. Þeir telja það renna styrkum stoðum undir samstarf Háskólans og Þjóðminjasafnsins. Jafnframt muni það efla fræðilega og verklega menntun nemenda á þeim fræðasviðum sem um ræðir. Þá er það talið til þess fallið að auka rannsóknir og kynningu á menningararfi þjóðarinnar og tryggja gæði rannsóknarstarfs hjá báðum stofnunum.
    Í umsögn Rannsóknaseturs í safnafræðum er bent á að í athugasemdum við frumvarpið segi að stefnt sé að því að koma upp sérstakri þverfaglegri rannsóknastofnun um málefni safna innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands. Rannsóknasetur gerir athugasemd við þetta og bendir á að meginröksemd fyrir stofnun Rannsóknaseturs í safnafræðum hafi verið að efla sjálfstæðar rannsóknir á safnasviði og því skjóti skökku við að stefnt sé að því að stofna þverfaglega stofnun, þegar slík stofnun sé nú þegar til innan vébanda Háskóla Íslands. Nefndin hefur tekið athugasemdina til skoðunar og áréttar að með fyrirhuguðum breytingum á lögum um Þjóðminjasafn Íslands verði séð til þess að sú starfsemi sem nú þegar er til staðar verði styrkt, en ekki grafið undan henni.
    Einnig var bent á í umsögn frá félagsvísindasviði Háskóla Íslands að með því að tilgreina Hugvísindastofnun sérstaklega í athugasemdum við frumvarpið sé lagt til að Þjóðminjasafnið tengist sérstaklega einu sviði Háskólans fremur en öðrum. Svo vilji til að á því sviði sé ein af þremur safnagreinum við Háskóla Íslands, en hinar safnagreinarnar séu á öðru sviði sem standi alfarið utan Hugvísindastofnunar. Þá segir að nær væri að Þjóðminjasafnið tengdist Rannsóknasetri í safnafræðum sem er starfrækt innan Félagsvísindastofnunar. Nefndin tekur undir þessi sjónarmið og telur að heppilegra væri að Háskólinn í samvinnu við Þjóðminjasafnið, frekar en Alþingi, fyndi lausn sem yrði rannsóknum á safnamálum og í safnagreinum til framdráttar þannig að ólíkar fræðigreinar geti lagt saman krafta sína á hvaða sviði Háskólans sem þær starfa.
    Við umfjöllun um málið vöknuðu spurningar um þýðingu þess sem lagt er til í frumvarpinu, þ.e. að Þjóðminjasafnið verði skilgreint sem „háskólastofnun“. Í minnisblaði mennta- og menningarmálaráðuneytis kemur fram að hugtakið háskólastofnun sé lögverndað heiti fyrir sjálfstæða menntastofnun sem sinni kennslu, rannsóknum, varðveislu þekkingar, þekkingarleit og sköpun á sviðum vísinda, fræða, tækniþróunar eða lista. Þá segir að með frumvarpinu sé að því stefnt að Þjóðminjasafn Íslands fái sambærilega stöðu gagnvart Háskóla Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, þ.e. að sú rannsóknarstarfsemi sem stunduð sé hjá Þjóðminjasafni geti nýst í samstarfi við Háskóla Íslands og aðra viðurkennda háskóla til eflingar á þekkingu innan fræðasamfélagsins. Slíkt samstarf komi samstarfsháskólum til góða, m.a. á þann hátt að sameiginlegar rannsóknir með Þjóðminjasafni Íslands verði teknar til greina við mat á rannsóknarstarfsemi hlutaðeigandi háskóla.
    Nefndin áréttar að um rannsóknarstöðu, sbr. 3. gr. frumvarpsins, gilda sömu reglur um hæfi og almennt gilda um sambærilegar stöður á háskólastigi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    4. gr. orðist svo:
    Lög þessi öðlast þegar gildi.

    Þráinn Bertelsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Siv Friðleifsdóttir og Birgitta Jónsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 15. mars 2013.



Björgvin G. Sigurðsson,


form., frsm.


Skúli Helgason.


Sigmundur Ernir Rúnarsson.



Ólafur Þór Gunnarsson.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.