Fundargerð 143. þingi, 0. fundi, boðaður 2013-10-01 14:05, stóð 14:06:48 til 14:30:07 gert 1 14:46
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 1. okt.

Árið 2013, þriðjudaginn 1. október, var hundrað fertugasta og þriðja löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundraðasta og sextánda aðalþing í röðinni en hundrað fimmtugasta og áttunda samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu, anddyri Skálans, kl. 1.10 miðdegis og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Séra Guðni Þór Ólafsson, prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi, predikaði. Séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónaði fyrir altari ásamt biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur. Séra Guðni lagði út af Markúsarguðspjalli 10:17--27.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

  1. Árni Páll Árnason 4. þm. Suðvest.
  2. Árni Þór Sigurðsson, 8. þm. Reykv. n.
  3. Ásmundur Einar Daðason, 3. þm. Norðvest.
  4. Ásmundur Friðriksson, 7. þm. Suðurk.
  5. Birgir Ármannsson, 9. þm. Reykv. n.
  6. Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvest.
  7. Bjarkey Gunnarsdóttir, 9. þm. Norðaust.
  8. Bjarni Benediktsson, 1. þm. Suðvest.
  9. Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykv. n.
  10. Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðaust.
  11. Brynjar Níelsson, 5. þm. Reykv. n.
  12. Einar K. Guðfinnsson, 2. þm. Norðvest.
  13. Elín Hirst, 13. þm. Suðvest.
  14. Elsa Lára Arnardóttir, 6. þm. Norðvest.
  15. Eygló Harðardóttir, 2. þm. Suðvest.
  16. Frosti Sigurjónsson, 2. þm. Reykv. n.
  17. Guðbjartur Hannesson, 5. þm. Norðvest.
  18. Guðlaugur Þór Þórðarson, 7. þm. Reykv. s.
  19. Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvest.
  20. Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvest.
  21. Hanna Birna Kristjánsdóttir, 1. þm. Reykv. s.
  22. Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvest.
  23. Haraldur Einarsson, 8. þm. Suðurk.
  24. Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykv. n.
  25. Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykv. s.
  26. Höskuldur Þórhallsson, 3. þm. Norðaust.
  27. Illugi Gunnarsson, 1. þm. Reykv. n.
  28. Jóhanna María Sigmundsdóttir, 7. þm. Norðvest.
  29. Jón Gunnarsson, 6. þm. Suðvest.
  30. Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykv. s.
  31. Karl Garðarsson, 8. þm. Reykv. s.
  32. Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykv. n.
  33. Katrín Júlíusdóttir, 11. þm. Suðvest.
  34. Kristján Þór Júlíusson, 2. þm. Norðaust.
  35. Kristján L. Möller, 7. þm. Norðaust.
  36. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvest.
  37. Líneik Anna Sævarsdóttir, 5. þm. Norðaust.
  38. Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurk.
  39. Óttarr Proppé, 11. þm. Reykv. s.
  40. Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurk.
  41. Páll Jóhann Pálsson, 5. þm. Suðurk.
  42. Pétur H. Blöndal, 4. þm. Reykv. s.
  43. Ragnheiður E. Árnadóttir, 2. þm. Suðurk.
  44. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 3. þm. Suðvest.
  45. Róbert Marshall, 6. þm. Reykv. s.
  46. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 1. þm. Norðaust.
  47. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, 3. þm. Reykv. s.
  48. Sigrún Magnúsdóttir, 7. þm. Reykv. n.
  49. Sigurður Ingi Jóhannsson, 1. þm. Suðurk.
  50. Silja Dögg Gunnarsdóttir, 3. þm. Suðurk.
  51. Steingrímur J. Sigfússon, 4. þm. Norðaust.
  52. Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykv. s.
  53. Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þm. Suðurk.
  54. Valgerður Bjarnadóttir, 11. þm. Reykv. n.
  55. Valgerður Gunnarsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  56. Vigdís Hauksdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  57. Vilhjálmur Árnason, 9. þm. Suðurk.
  58. Vilhjálmur Bjarnason, 9. þm. Suðvest.
  59. Willum Þór Þórsson, 5. þm. Suðvest.
  60. Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Suðvest.
  61. Þórunn Egilsdóttir, 8. þm. Norðaust.
  62. Ögmundur Jónasson, 8. þm. Suðvest.
  63. Össur Skarphéðinsson, 4. þm. Reykv. n.

Forseti Íslands setur þingið.

[14:06]

Horfa

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, til ræðustóls og las bréf handhafa valds forseta Íslands um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 1. október.

Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið.

Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.

Strengjakvartett flutti lagið Hver á sér fegra föðurland.


Ávarp forseta Alþingis.

[14:19]

Horfa

Forseti ávarpaði þingheim.

Fundi frestað kl. 14:30.

---------------