Fundargerð 143. þingi, 2. fundi, boðaður 2013-10-02 19:40, stóð 19:43:19 til gert 3 9:1
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

2. FUNDUR

miðvikudaginn 2. okt.,

kl. 7.40 síðdegis.

Dagskrá:

Fjarvistarleyfi:


Stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:43]

Horfa

Umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra var útvarpað og sjónvarpað. Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra höfðu 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.

Röð flokkanna var í öllum umferðum þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Sjálfstæðisflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu forsætisráðherra Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, í fyrstu umferð, í annarri umferð Líneik Anna Sævarsdóttir, 5. þm. Norðausturkjördæmis, og í þriðju umferð sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Árni Páll Árnason, 4. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, og í þeirri þriðju Helgi Hörvar, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru í fyrstu umferð Katrín Jakobsdóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri umferð Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis og í þriðju umferð Árni Þór Sigurðsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru í fyrstu umferð fjármála- og efnahagsráðherra Bjarni Benediktsson, í annarri umferð Haraldur Benediktsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis og í þriðju umferð iðnaðar- og viðskiptaráðherra Ragnheiður E. Árnadóttir.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Guðmundur Steingrímsson, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri Björt Ólafsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þriðju umferð Páll Valur Björnsson, 10. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Pírata töluðu í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þriðju umferð Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Þingmálaskrá:

Fundi slitið kl. 22:20.

---------------