Fundargerð 144. þingi, 1. fundi, boðaður 2014-09-09 16:00, stóð 16:02:37 til 16:21:27 gert 10 7:55
Alþingishúsið [prenta uppsett í dálka] [<-][->]

ÞINGSETNINGARFUNDUR (frh.)

þriðjudaginn 9. sept.,

kl. 4 síðdegis.

Dagskrá:

Lagt fram á lestrarsal:


Afsal varaþingmennsku.

[16:02]

Horfa

Forseti tilkynnti að 1. varamaður Framsóknarflokksins í Reykv. n., Þorsteinn Magnússon, hefði sagt af sér varaþingmennsku.


Varamenn taka þingsæti.

[16:03]

Horfa

Forseti tilkynnti að Ólína Þorvarðardóttir tæki sæti Guðbjarts Hannessonar, 5. þm. Norðvest., og Brynhildur Björnsdóttir tæki sæti Róberts Marshalls, 6. þm. Reykv. s.


Tilkynning um útbýtingu.

[16:04]

Horfa

Forseti benti á að listi yfir þingskjöl sem útbýtt hefði verið í júlí og ágúst lægi frammi.

[16:04]

Útbýting þingskjala:


Tilkynning um stjórn þingflokks.

[16:04]

Horfa

Forseti greindi frá að borist hefði tilkynning um eftirfarandi breytingu á stjórn þingflokks Pírata: formaður Helgi Hrafn Gunnarsson, varaformaður Jón Þór Ólafsson og ritari Birgitta Jónsdóttir. Jafnframt að Birgitta Jónsdóttir væri formaður Pírata.


Tilkynning um mannabreytingar í nefndum.

[16:05]

Horfa

Forseti kynnti eftirfarandi mannabreytingar í nefndum:

Allsherjar- og menntamálanefnd: Bjarkey Gunnarsdóttir tekur sæti Svandísar Svavarsdóttur sem aðalmaður og Svandís Svavarsdóttir tekur sæti varamanns.

Efnahags- og viðskiptanefnd: Katrín Jakobsdóttir tekur sæti Svandísar Svavarsdóttur sem varamaður.

Fjárlaganefnd: Ögmundur Jónasson tekur sæti Árna Þórs Sigurðssonar sem varamaður.

Utanríkismálanefnd: Katrín Jakobsdóttir tekur sæti Árna Þórs Sigurðssonar sem aðalmaður og Steinunn Þóra Árnadóttir tekur sæti Katrínar Jakobsdóttur sem varamaður.

Umhverfis- og samgöngunefnd: Svandís Svavarsdóttir tekur sæti Katrínar Jakobsdóttur sem aðalmaður.

Velferðarnefnd: Steinunn Þóra Árnadóttir tekur sæti Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur sem aðalmaður og Lilja Rafney Magnúsdóttir tekur sæti Ögmundar Jónassonar sem varamaður.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES: Katrín Jakobsdóttir tekur sæti Árna Þórs Sigurðssonar sem aðalmaður.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Lilja Rafney Magnúsdóttir tekur sæti Katrínar Jakobsdóttur sem aðalmaður og Svandís Svavarsdóttir tekur sæti Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur sem varamaður.


Tilkynning um stefnuræðu forsætisráðherra.

[16:06]

Horfa

Forseti tilkynnti að stefnuræða forsætisráðherra færi fram miðvikudagskvöldið 10. september.


Afbrigði um sætaúthlutun.

[16:07]

Horfa

Veitt voru afbrigði frá sætaúthlutun vegna sæta þingflokksformanna.


Hlutað um sæti þingmanna skv. 4. mgr. 3. gr. þingskapa.

Sætaúthlutun fór á þessa leið:

  1. sæti er sæti forseta.
  2. sæti hlaut Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.
  3. sæti hlaut Brynjar Níelsson.
  4. sæti hlaut Frosti Sigurjónsson.
  5. sæti hlaut Katrín Jakobsdóttir.
  6. sæti hlaut Árni Páll Árnason.
  7. sæti hlaut Svandís Svavarsdóttir.
  8. sæti hlaut Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
  9. sæti hlaut Elsa Lára Arnardóttir.
  10. sæti hlaut Þorsteinn Sæmundsson.
  11. sæti hlaut Haraldur Einarsson.
  12. sæti hlaut Líneik Anna Sævarsdóttir.
  13. sæti hlaut Valgerður Gunnarsdóttir.
  14. sæti hlaut Steinunn Þóra Árnadóttir.
  15. sæti hlaut Guðbjartur Hannesson.
  16. sæti hlaut Guðlaugur Þór Þórðarson.
  17. sæti hlaut Jón Þór Ólafsson.
  18. sæti hlaut Pétur H. Blöndal.
  19. sæti hlaut Birgitta Jónsdóttir.
  20. sæti hlaut Jón Gunnarsson.
  21. sæti hlaut Ásmundur Einar Daðason.
  22. sæti hlaut Sigrún Magnúsdóttir.
  23. sæti hlaut Helgi Hjörvar.
  24. sæti hlaut Páll Jóhann Pálsson.
  25. sæti hlaut Björt Ólafsdóttir.
  26. sæti hlaut Karl Garðarsson.
  27. sæti hlaut Valgerður Bjarnadóttir.
  28. sæti hlaut Vilhjálmur Árnason.
  29. sæti hlaut Ögmundur Jónasson.
  30. sæti hlaut Össur Skarphéðinsson.
  31. sæti hlaut Einar K. Guðfinnsson.
  32. sæti hlaut Steingrímur J. Sigfússon.
  33. sæti hlaut Silja Dögg Gunnarsdóttir.
  34. sæti hlaut Vigdís Hauksdóttir.
  35. sæti hlaut Óttarr Proppé.
  36. sæti hlaut Birgir Ármannsson.
  37. sæti hlaut Unnur Brá Konráðsdóttir.
  38. sæti hlaut Haraldur Benediktsson.
  39. sæti hlaut Oddný G. Harðardóttir.
  40. sæti hlaut Guðmundur Steingrímsson.
  41. sæti hlaut Willum Þór Þórsson.
  42. sæti hlaut Kristján L. Möller.
  43. sæti hlaut Brynhildur Pétursdóttir.
  44. sæti hlaut Helgi Hrafn Gunnarsson.
  45. sæti hlaut Róbert Marshall.
  46. sæti hlaut Lilja Rafney Magnúsdóttir.
  47. sæti hlaut Páll Valur Björnsson.
  48. sæti hlaut Þórunn Egilsdóttir.
  49. sæti hlaut Katrín Júlíusdóttir.
  50. sæti hlaut Jóhanna María Sigmundsdóttir.
  51. sæti hlaut Bjarkey Gunnarsdóttir.
  52. sæti hlaut Ásmundur Friðriksson.
  53. sæti hlaut Elín Hirst.
  54. sæti hlaut Vilhjálmur Bjarnason.
  55. sæti hlaut Höskuldur Þórhallsson.
  56. sæti er sæti varamanns.
  57. sæti er sæti varamanns.
  58. sæti er sæti félags- og húsnæðismálaráðherra.
  59. sæti er sæti mennta- og menningarmálaráðherra.
  60. sæti er sæti utanríkisráðherra.
  61. sæti er sæti forsætisráðherra.
  62. sæti er sæti fjármála- og efnahagsráðherra.
  63. sæti er sæti heilbrigðisráðherra.
  64. sæti er sæti iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
  65. sæti er sæti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
  66. sæti er sæti innanríkisráðherra.

Fundi slitið kl. 16:21.

---------------