Ferill 532. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 913  —  532. mál.




Fyrirspurn


til forsætisráðherra um framkvæmd upplýsingalaga og upplýsingastefnu.

Frá Birgittu Jónsdóttur.


     1.      Hvers vegna hefur ráðherra ekki enn gefið Alþingi skýrslu um framkvæmd upplýsingalaga í samræmi við 3. mgr. 13. gr. laganna? Hvenær hyggst ráðherra gefa umrædda skýrslu?
     2.      Hefur verið mörkuð upplýsingastefna til fimm ára eins og ráðherra er skylt að hafa forgöngu um skv. 3. mgr. 13. gr. upplýsingalaga?
     3.      Hvernig metur ráðherra árangurinn af nýju upplýsingalögunum og telur hann að eitthvað mætti betur fara í lögunum eða framkvæmd þeirra?