Ferill 617. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1069  —  617. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um eftirlit með gistirými.

Frá Þorsteini Sæmundssyni.


     1.      Hefur ráðherra upplýsingar um hversu margar íbúðir og herbergi á höfuðborgarsvæðinu sem ekki uppfylla skilyrði um skráningu og hafa því ekki starfsleyfi vegna útleigu í atvinnuskyni eru nú leigð ferðamönnum?
     2.      Liggja fyrir sambærilegar upplýsingar vegna óskráðrar starfsleyfislausrar útleigu á landsvísu?
     3.      Hyggst ráðherra greiða fyrir því með sérstökum fjárheimildum að lögregla geti sinnt eftirliti með þessari starfsemi og fært hana til betra horfs?