Ferill 623. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1078  —  623. mál.




Fyrirspurn



til innanríkisráðherra um nýtt vegstæði yfir há-Holtavörðuheiði.

Frá Kristjáni L. Möller.


     1.      Hvaða athuganir hefur Vegagerðin látið gera á nýju vegstæði yfir há-Holtavörðuheiði?
     2.      Hversu miklu neðar, í metrum talið, gæti nýtt vegstæði legið?
     3.      Hver er hugsanlegur kostnaður við slíka framkvæmd?
     4.      Kemur til greina af hálfu ráðherra að veita fé til slíkrar framkvæmdar í næstu fjögurra ára samgönguáætlun?