Ferill 698. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1503  —  698. mál.




Frumvarp til laga



um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar,
nr. 78/2002, með síðari breytingum (full niðurgreiðsla
vegna flutnings og dreifingar).

(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)


1. gr.


    1. málsl. 1. gr. laganna orðast svo: Lög þessi mæla fyrir um niðurgreiðslur kostnaðar, styrkveitingar og úthlutun fjár sem ákveðið er í fjárlögum til.

2. gr.

    1. málsl. 1. mgr. 4. gr. laganna orðast svo: Niðurgreiða skal orku til hitunar íbúðarhúsnæðis í eftirfarandi tilvikum.

3. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:
     a.      Í stað 1. mgr. koma þrjár nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                  Upphæð niðurgreiðslna á raforku til húshitunar skal nema jafngildi kostnaðar við flutning og dreifingu raforkunnar frá virkjun til notanda.
                  Upphæð niðurgreiðslna á vatni frá kyntum hitaveitum skal ákveðin í samræmi við breytingar á niðurgreiðslum til beinnar rafhitunar og þeirri fjárhæð sem samþykkt er í fjárlögum viðkomandi árs.
                  Upphæð niðurgreiðslna á eldsneyti skal miða við að kostn­aður notenda verði svipaður og þar sem hann er hæstur með rafhitun.
     b.      Á eftir orðunum „hámarksfjölda lítra af olíu“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: og hámarksfjölda kílóa eða rúmmetra af tilteknum teg­undum eldsneytis.

4. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „olíu“ í 1. málsl. kemur: eldsneyti.
     b.      Í stað orðsins „olíukaup“ í 2. málsl. kemur: eldsneytiskaup.
     c.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Ákvörðun notkunar við eldsneytishitun.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:
     a.      Í stað orðsins „olíu“ kemur: eldsneyti.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Framkvæmd niðurgreiðslu á eldsneyti.

6. gr.


    Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:
     a.      Í stað 1. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Veita skal styrki til stofnunar nýrra hitaveitna eða til stækkunar eldri veitna. Styrkjunum skal varið til eftirfarandi þátta.
     b.      Í stað orðsins ,,olíu“ í 4. tölul. kemur: eldsneyti.

7. gr.

    Í stað orðsins „olíu“ í 1. og 5. málsl. 1. mgr. 12. gr. laganna kemur: eldsneyti.

8. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2016.