Ferill 470. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
144. löggjafarþing 2014–2015.
Þingskjal 1579 — 470. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940,
með síðari breytingum (nálgunarbann).
(Eftir 2. umræðu, 1. júlí.)
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 242. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „ákvæðum“ í 1. tölul. kemur: 232. gr.
b. A-liður 2. tölul. orðast svo: Brot gegn ákvæðum 230. og 231. gr. sæta ákæru eftir kröfu þess manns sem misgert var við.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.