Ferill 239. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 259 — 239. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um aðgang að lækningalind Bláa lónsins.
Frá Silju Dögg Gunnarsdóttur.
Hefur reglum um aðgang psoriasissjúklinga að lækningalind Bláa lónsins verið breytt á síðustu tveimur árum? Ef svo er, í hverju felast breytingarnar?
Skriflegt svar óskast.