Ferill 241. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


145. löggjafarþing 2015–2016.
Þingskjal 261  —  241. mál.




Fyrirspurn



til mennta- og menningarmálaráðherra um Menningarsjóð félagsheimila.

Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.


     1.      Hversu oft hefur verið úthlutað fé úr Menningarsjóði félagsheimila og á hvaða tímabili?
     2.      Hvenær var síðast úthlutað úr sjóðnum og hvaða fjárhæð var þá til úthlutunar?
     3.      Hvert var helsta hlutverk sjóðsins?
     4.      Hefur sjóðurinn verið lagður formlega niður?


Skriflegt svar óskast.