51. FUNDUR
mánudaginn 16. apríl,
að loknum 50. fundi.
Kosning ríkisendurskoðanda skv. 2. gr. laga nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga, til sex ára frá 1. maí 2018.
Skúli Eggert Þórðarson var kjörinn ríkisendurskoðandi með 50 samhljóða atkvæðum.
Lengd þingfundar.
Um fundarstjórn.
Stjórnarfrumvörp of seint fram komin -- beiðni um skýrslu.
Málshefjandi var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
Skipulag haf- og strandsvæða, 1. umr.
Stjfrv., 425. mál. --- Þskj. 607.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og um.- og samgn.
Mat á umhverfisáhrifum, 1. umr.
Stjfrv., 467. mál (EES-reglur, stjórnvaldssektir o.fl.). --- Þskj. 673.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og um.- og samgn.
Stefnumarkandi landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum 2018--2029, fyrri umr.
Stjtill., 479. mál. --- Þskj. 689.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og um.- og samgn.
Póst- og fjarskiptastofnun o.fl., 1. umr.
Stjfrv., 454. mál (gjaldtaka fyrir tíðnir og alþjónusta). --- Þskj. 653.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og um.- og samgn.
Breyting á ýmsum lögum vegna alþjóðasamþykktar um vinnuskilyrði farmanna, 1. umr.
Stjfrv., 455. mál. --- Þskj. 654.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og um.- og samgn.
Stefnumótandi byggðaáætlun 2018--2024, fyrri umr.
Stjtill., 480. mál. --- Þskj. 690.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og um.- og samgn.
Köfun, 1. umr.
Stjfrv., 481. mál. --- Þskj. 691.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og um.- og samgn.
Réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands o.fl., 1. umr.
Stjfrv., 468. mál (vernd réttinda á vinnumarkaði, EES-mál). --- Þskj. 674.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og velfn.
Húsnæðismál, 1. umr.
Stjfrv., 469. mál (stefnumótun á sviði húsnæðismála, hlutverk Íbúðalánasjóðs). --- Þskj. 675.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og velfn.
[23:56]
Fundi slitið kl. 23:57.
---------------