67. FUNDUR
mánudaginn 4. júní,
kl. 7.30 síðdegis.
Almennar stjórnmálaumræður.
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrstu umferð, fimm mínútur í annarri og fimm mínútur síðustu umferð.
Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkurinn, Vinstrihreyfingin grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Flokkur fólksins og Viðreisn.
Fyrir Samfylkinguna töluðu Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, í fyrstu umferð, Ágúst Ólafur Ágústsson, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð og í þriðju umferð Guðjón S. Brjánsson, 6. þm. Norðvesturkjördæmis.
Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrstu umferð, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, í annarri en í þriðju umferð Bryndís Haraldsdóttir, 2. þm. Suðvesturkjördæmis.
Fyrir Miðflokkinn töluðu Gunnar Bragi Sveinsson, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Bergþór Ólason, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri en í þriðju umferð Þorsteinn Sæmundsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.
Fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð töluðu Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrstu umferð, Ólafur Þór Gunnarsson, 11. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og í þeirri þriðju Steinunn Þóra Árnadóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.
Ræðumenn Pírata voru í fyrstu umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Smári McCarthy, 10. þm. Suðurkjördæmis, og Halldóra Mogensen, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í þriðju umferð.
Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Willum Þór Þórsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis í fyrstu umferð, Þórunn Egilsdóttir, 4. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri og í þriðju Ásgerður K. Gylfadóttir, 7. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, í annarri Ólafur Ísleifsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þeirri þriðju Karl Gauti Hjaltason, 8. þm. Suðurkjördæmis.
Fyrir Viðreisn töluðu í fyrstu umferð Þorsteinn Víglundsson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í annarri Hanna Katrín Friðriksson, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður og í þriðju umferð Þorgerður K. Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis.
[22:05]
Fundi slitið kl. 22:06.
---------------