Ferill 32. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


148. löggjafarþing 2017–2018.
Þingskjal 32  —  32. mál.




Fyrirspurn


til mennta- og menningarmálaráðherra um kjarasamninga framhaldsskólakennara.

Frá Birni Leví Gunnarssyni.


     1.      Hvernig skiptist árlegur kostnaður af nýjustu kjarasamningum framhaldsskólakennara eftir viðsemjendum (kjarasamningum) og skólum?
     2.      Hverjar eru árlegar reiknaðar launabætur og aðrar greiðslur ríkissjóðs til greiðslu kostnaðarhækkana sem í samningunum felast eftir kjarasamningum og skólum?
     3.      Hverjar eru ástæður þess að skólastjórnendur telja sig ekki fá þær launabætur sem kjarasamningar fela í sér að þeirra mati og hver telur ráðherra að sé ástæðan fyrir mismunandi túlkun hans og skólastjórnenda á fjárhæð bótanna?
     4.      Hver er mismunurinn á árlegum launabótum sem skólastjórnendur telja sig eiga að fá, skipt eftir kjarasamningum og skólum, og þeim bótum sem ríkissjóður hefur greitt þeim og mun greiða á samningstímanum?
     5.      Hve háum fjárhæðum nema árleg framlög til skóla- og námsþróunar, skipt eftir kjarasamningum, öðrum ákvarðandi þáttum og skólum?
     6.      Telur ráðherra að þær áherslur sem markaðar eru í kjarasamningum framhaldsskólakennara séu til þess fallnar að þróa og bæta skólastarf í samræmi við menntastefnu stjórnvalda? Ef svo er ekki, hvað vantar upp á?


Skriflegt svar óskast.