Ferill 601. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1002 — 601. mál.
Fyrirspurn
til félags- og barnamálaráðherra um ábyrgð á vernd barna gegn einelti.
Frá Jóni Þór Ólafssyni.
Hvaða aðilar sem heyra undir ráðherra bera ábyrgð á því að börn verði ekki fyrir einelti í ljósi þess að ráðherra fer með málefni félags- og fjölskyldumála, þar á meðal barnavernd, sbr. 2. tölul. 4. gr. forsetaúrskurðar nr. 119/2018? Óskað er eftir því að tilgreindir verði allir aðilar sem bera ábyrgð á því að koma í veg fyrir einelti og vernda þolendur þess, hvernig ábyrgð þeirra skiptist og samkvæmt hvaða lögum og reglum sú ábyrgð hvílir á þeim.
Skriflegt svar óskast.