Ferill 707. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1131  —  707. mál.




Fyrirspurn


til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um gjöld á strandveiðar.

Frá Ingu Sæland.


     1.      Hversu háar upphæðir hafa árlega verið lagðar á útgerðir strandveiðibáta í veiðigjöld frá því að veiðar hófust til og með vertíðinni 2018, flokkað eftir svæðum A–D, bæði í krónutölu ársins sem um ræðir og reiknað til núvirðis?
     2.      Hversu háar upphæðir hafa útgerðir strandveiðibáta greitt árlega sem ráðstafað hefur verið til hafna frá því að veiðar hófust til og með vertíðinni 2018, flokkað eftir höfnum, bæði í krónutölu ársins sem og ræðir og reiknað til núvirðis?
     3.      Hversu háar upphæðir hafa útgerðir strandveiðibáta greitt árlega fyrir veiðileyfi frá því að veiðar hófust til og með vertíðinni 2018, flokkað eftir svæðum A–D, bæði í krónutölu ársins sem og ræðir og reiknað til núvirðis?


Skriflegt svar óskast.