Ferill 642. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Þingskjal 1401  —  642. mál.
2. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um siglingavernd, nr. 50/2004, með síðari breytingum (dagsektir, laumufarþegar o.fl.).

Frá umhverfis- og samgöngunefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ástu Sóllilju Sigurbjörnsdóttur frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.
    Nefndinni barst umsögn frá Hafnasambandi Íslands.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um siglingavernd og lúta þær annars vegar að því að mæla fyrir um heimild Samgöngustofu til þess að beita eftirlitsskylda aðila dagsektum uppfylli þeir ekki skyldur sínar samkvæmt ákvæðum laganna og hins vegar að mæla fyrir um refsingu við brotum á banni við að fara í heimildarleysi inn á haftasvæði siglingaverndar.
    Líkt og kemur fram í greinargerð með frumvarpinu er það lagt fram í kjölfar samþykktar laga nr. 71/2018, um breytingu á lögum um siglingavernd og lögum um loftferðir, 8. júní 2018. Í meðförum nefndarinnar á því máli (263. mál á 148. löggjafarþingi) voru ákvæði um refsingar, stjórnvaldssektir og dagsektir felld brott og því beint til ráðuneytisins að endurskoða tillögu sína um slík ákvæði með hliðsjón af nánar tilgreindum sjónarmiðum, m.a. sjónarmiða um meðalhóf. Nefndin lýsir ánægju sinni með vinnslu málsins hjá ráðuneytinu og telur að með frumvarpi þessu sé brugðist við þeim ábendingum og athugasemdum sem nefndin gerði við málið í áliti sínu á þingskjali 1056.
    Leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Björn Leví Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.

Alþingi, 30. apríl 2019.

Jón Gunnarsson,
form.
Vilhjálmur Árnason,
frsm.
Ari Trausti Guðmundsson.
Bergþór Ólason. Helga Vala Helgadóttir. Hanna Katrín Friðriksson.
Karl Gauti Hjaltason. Líneik Anna Sævarsdóttir. Rósa Björk Brynjólfsdóttir.