Ferill 792. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


149. löggjafarþing 2018–2019.
Prentað upp.

Þingskjal 1555  —  792. mál.
Leiðréttur texti.

2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum (tilvísun í stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Birgi Tjörva Pétursson og Ólaf Jóhannes Einarsson, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttur ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Erlu Sigríði Gestsdóttur og Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Jóhönnu Bryndísi Bjarnadóttur frá utanríkisráðuneyti, Tryggva Þórhallsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Jón Ingimarsson og Geir Arnar Marelsson frá Landsvirkjun, Guðmund Inga Ásmundsson og Guðjón Axel Guðjónsson frá Landsneti, Pál Erland og Baldur Dýrfjörð frá Samorku, samtökum orku- og veitufyrirtækja, Valdimar Össurarson frá Valorku ehf., Pétur Reimarsson og Davíð Þorláksson frá Samtökum atvinnulífsins, Sigurð Hannesson og Lárus Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins, Hilmar Gunnlaugsson og Viðar Guðjohnsen, Frosta Sigurjónsson, Bjarna Jónsson og Harald Ólafsson frá samtökunum Orkan okkar, Hönnu Björgu Konráðsdóttur, Guðmund I. Bergþórsson og Rán Jónsdóttur frá Orkustofnun, Hjört Torfason og Eyjólf Ármannsson.
    Umsagnir bárust nefndinni frá Bjarna Jónssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Heimssýn, Hilmari Gunnlaugssyni, HS Orku hf., Landsneti hf., Landsvirkjun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samorku – samtökum orku- og veitufyrirtækja, Samtökum atvinnulífsins, Samtökum iðnaðarins, Umhverfisstofnun, Valorku ehf.
    Með frumvarpinu er lagt til að við raforkulög verði bætt nýju ákvæði um að um tengingu raforkukerfis landsins við raforkukerfi annars lands í gegnum sæstreng fari samkvæmt stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku.
    Megintilgangur frumvarpsins er að tryggja að ef ákvörðun um að tengja raforkukerfi landsins við raforkukerfi annarra landa verður tekin skuli framkvæmdin vera í samræmi við stefnu stjórnvalda á hverjum tíma. Er því verið að breyta raforkulögum til samræmis við tillögu til breytingar á þingsályktun sem var lögð fram samhliða frumvarpi þessu.
    Fyrir nefndinni var getið um ýmis sjónarmið um stjórnskipuleg álitamál tengd innleiðingu þriðja orkupakka ESB. Þau heyra ekki efnislega undir nefndina og hafa fengið umfjöllun fyrir utanríkismálanefnd. Verður því ekki fjallað um þau atriði hér.
    Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið með og á móti lagningu sæstrengs. Nefndin áréttar að með lagabreytingunni er ekki kveðið á um heimild til lagningar sæstrengs heldur er verið að festa í lög að slík framkvæmd verði að vera í samræmi við stefnu stjórnvalda hverju sinni.
    Meiri hluti nefndarinnar bendir á að verið er að breyta lögum til samræmis við fyrrnefnda breytingu á þingsályktun þar sem lagt er til að kveðið verði á um að ekki verði ráðist í lagningu sæstrengs nema að undangengnu samþykki Alþingis. Bendir meiri hlutinn á að ekki er tekin afstaða til slíkrar framkvæmdar heldur undirstrikað að ákvörðun um lagningu sæstrengs verði ekki tekin nema að vel ígrunduðu máli og með aðkomu Alþingis. Bendir meiri hlutinn enn fremur á að eðlilegt er og nauðsynlegt að samþykki Alþingis liggi fyrir um það hvort í slíka framkvæmd verði ráðist þar sem ákvörðun þar um getur haft mikil áhrif á mikilvæga almannahagsmuni. Meiri hlutinn áréttar enn fremur að áður en samþykkis Alþingis verður leitað skal liggja fyrir ítarleg og heildstæð kostnaðar- og ábatagreining þar sem lagt er mat á umhverfisleg, samfélagsleg og efnahagsleg áhrif tengingar með sæstreng. Þá fylgir reglugerð atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins um að koma á fót Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði sem fylgiskjal með áliti þessu.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


     1.      Í stað orðanna „í gegnum“ í 1. gr. komi: um.
     2.      Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum, nr. 65/2003, með síðari breytingum (flutningskerfi raforku).

    Þorgerður K. Gunnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 17. maí 2019.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Njáll Trausti Friðbertsson,
frsm.
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.
Birgir Ármannsson. Halla Signý Kristjánsdóttir. Kolbeinn Óttarsson Proppé.


Fylgiskjal.


REGLUGERÐ
um innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 frá 13. júlí 2009 um að koma á fót Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði.


1. gr.
Gildistaka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009.

    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 frá 13. júlí 2009 um að koma á fót Samstarfsstofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði, skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 frá 5. maí 2017 um breytingu á í IV. viðauka (Orka) samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með þeim viðbótum sem leiðir af reglugerð þessari og bókun 1 við EES-samninginn.
    Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 og þeim fyrirvara sem fram kemur í 3. gr.

2. gr.
Tilvísun.

    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 93/2017 frá 5. maí 2017 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 11 frá 7. febrúar 2019, bls. 53, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 31 frá 18. maí 2017, bls. 555.
    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 er birt sem fylgiskjal með reglugerð þessari.

3. gr.
Fyrirvari.

    Þar sem íslenska raforkukerfið er ekki tengt raforkukerfi annars lands, með grunnvirkjum yfir landamæri, koma ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 713/2009 sem varða raforkutengingar milli landa ekki til framkvæmda á Íslandi á meðan slíkri tengingu hefur ekki verið komið á.
    Grunnvirki sem gera mögulegt að flytja raforku milli Íslands og orkumarkaðar ESB verða ekki reist nema að undangengnu samþykki Alþingis og endurskoðun á stjórnskipulegum lagagrundvelli reglugerðarinnar.

4. gr.
Lagastoð og gildistaka.

    Reglugerð þessi er sett með stoð í 45. gr. raforkulaga nr. 65/2003, með síðari breytingum. Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.


Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, ______.

F.h. ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,