Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 809, 150. löggjafarþing 316. mál: áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa (smáskipaviðmið og mönnunarkröfur).
Lög nr. 166 22. desember 2019.
Hafi skipstjórnarmaður eða vélstjórnarmaður skírteini til starfa á skipum sem eru styttri en 12 metrar að skráningarlengd samkvæmt lögum þessum skal hann þar til 1. janúar 2021 eiga rétt á að fá útgefið skírteini til þess að gegna sömu störfum á skipum sem eru 15 metrar að skráningarlengd eða styttri, að uppfylltum öðrum skilyrðum laga þessara og kröfum um lágmarkssiglingatíma eins og nánar er kveðið á um í reglugerð.
Þingskjal 809, 150. löggjafarþing 316. mál: áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa (smáskipaviðmið og mönnunarkröfur).
Lög nr. 166 22. desember 2019.
Lög um breytingu á lögum um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa, nr. 30/2007, með síðari breytingum (smáskipaviðmið og mönnunarkröfur).
1. gr.
Í stað tölunnar „12“ í 19. tölul. 3. gr. laganna kemur: 15.2. gr.
Í stað tölunnar „12“ í a-lið 1. mgr., 1., 2. og 3. tölul. a-liðar 3. mgr. og 4. mgr. 12. gr. laganna kemur: 15.3. gr.
Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:Hafi skipstjórnarmaður eða vélstjórnarmaður skírteini til starfa á skipum sem eru styttri en 12 metrar að skráningarlengd samkvæmt lögum þessum skal hann þar til 1. janúar 2021 eiga rétt á að fá útgefið skírteini til þess að gegna sömu störfum á skipum sem eru 15 metrar að skráningarlengd eða styttri, að uppfylltum öðrum skilyrðum laga þessara og kröfum um lágmarkssiglingatíma eins og nánar er kveðið á um í reglugerð.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. september 2020.Samþykkt á Alþingi 17. desember 2019.