Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 961  —  584. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölda lögreglumanna 1. febrúar 2020.

Frá Karli Gauta Hjaltasyni.


     1.      Hversu margir lögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2020? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda fullmenntaðra lögreglumanna, fjölda afleysingafólks í lögreglu og fjölda héraðslögreglumanna.
     2.      Hver var fjöldi ársverka hvers lögregluembættis 1. febrúar 2020?
     3.      Hver var heildarkostnaður hvers lögregluembættis við stöðugildi lögreglumanns 1. febrúar 2020?
     4.      Hversu margir rannsóknarlögreglumenn störfuðu við hvert lögregluembætti 1. febrúar 2020?


Skriflegt svar óskast.