Ferill 813. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1567 — 813. mál.
2. umræða.
Breytingartillaga
við breytingartillögu á þskj. 1546 [Atvinnuleysistryggingar og Ábyrgðasjóður launa (framlenging hlutabótaleiðar)].
Frá Lilju Rafneyju Magnúsdóttur, Ólafi Þór Gunnarssyni, Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Vilhjálmi Árnasyni og Ásmundi Friðrikssyni.
1. Í stað orðanna „1. janúar 2022 og til að ráðstafa ekki til hluthafa með arðgreiðslu, lækkun hlutafjár eða kaupum eigin hluta hagnaði sem myndast á rekstrarári, sem hefst 1. janúar 2020 eða síðar, fyrr en í fyrsta lagi eftir 1. janúar 2023“ í 3. málsl. 3. tölul. 4. efnismgr. 2. tölul. komi: 31. maí 2022.
2. Í stað orðanna „1. janúar 2023“ í 2. málsl. 9. efnismgr. 2. tölul. komi: 31. maí 2022.