Ferill 665. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1911  —  665. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, nr. 46/1980, með síðari breytingum (vinnutími starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð).

(Eftir 2. umræðu, 29. júní.)


1. gr.

    Bráðabirgðaákvæði 9 í lögunum orðast svo:
    Með samkomulagi samtaka aðila vinnumarkaðarins er heimilt að víkja frá ákvæðum 53. og 56. gr. um hvíldartíma og næturvinnutíma þeirra starfsmanna sem veita einstaklingum þjónustu á grundvelli 11. gr. laga nr. 38/2018, um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Sé með slíku samkomulagi vikið frá ákvæði 53. gr. þannig að hvíldartíminn verði styttri hjá viðkomandi starfsmönnum en ákvæðið gerir ráð fyrir skal við það miðað að starfsmennirnir fái eins fljótt og við verður komið samsvarandi hvíldartíma að lágmarki og kveðið er á um í fyrrnefndu ákvæði. Vinnueftirlit ríkisins skal veita umsögn um slíkt samkomulag samtaka aðila vinnumarkaðarins.
    Ákvæði þetta gildir til 31. desember 2020 og tekur til samninga sem gerðir eru á tímabilinu frá 1. janúar 2020 til 31. desember 2020.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.