Fundargerð 152. þingi, 87. fundi, boðaður 2022-06-08 19:35, stóð 19:36:42 til 21:29:02 gert 8 21:31
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

87. FUNDUR

miðvikudaginn 8. júní,

kl. 7.35 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:36]

Horfa

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna var þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Flokkur fólksins, Framsóknarflokkur, Píratar, Vinstrihreyfingin-- grænt framboð, Viðreisn og Miðflokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru eftirtaldir:

Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrri umferð Helga Vala Helgadóttir, 4. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í þeirri seinni Jóhann Páll Jóhannsson, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra í fyrri umferð og Berglind Ósk Guðmundsdóttir, 6. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Flokk fólksins töluðu Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrri umferð og Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í seinni umferð.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og Stefán Vagn Stefánsson, 1. þm. Norðvesturkjördæmis, í þeirri seinni.

Ræðumenn Pírata voru í fyrri umferð Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, og í seinni umferð Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð töluðu Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Bjarni Jónsson, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Viðreisn töluðu í fyrri umferð Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Miðflokkinn töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fundi slitið kl. 21:29.

---------------