Ferill 396. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 570  —  396. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um aðgerðir gegn einelti á vinnustöðum.

Frá Kolbrúnu Baldursdóttur.


    Hefur ráðherra íhugað að breyta reglugerð um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum, nr. 1009/2015, og endurskilgreina einelti í samræmi við eldri reglugerð, nr. 100/2004, þannig að ekki sé ófrávíkjanlegt skilyrði að hegðunin sé síendurtekin? Ef svo er, hvenær er breytingarinnar að vænta? Hver er afstaða ráðherra til þessa máls?


Skriflegt svar óskast.