Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 583  —  406. mál.




Fyrirspurn


til félags- og vinnumarkaðsráðherra um kærur til úrskurðarnefndar velferðarmála vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins.

Frá Ásthildi Lóu Þórsdóttur.


     1.      Hversu margar kærur bárust úrskurðarnefnd velferðarmála frá ársbyrjun 2016 til ársloka 2021, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hversu margar af þeim kærum voru vegna ákvarðana Tryggingastofnunar ríkisins í málum á grundvelli laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, sundurliðað eftir árum?
     4.      Hversu mörgum umræddra kærumála var vísað frá á þeim grundvelli að Tryggingastofnun ríkisins tók mál kæranda til skoðunar á ný á meðan nefndin var með málið til umfjöllunar, sundurliðað eftir árum?
     5.      Hver var meðalmálsmeðferðartími umræddra kærumála, þ.e. frá því að kæra barst og þar til úrskurður lá fyrir, sundurliðað eftir árum, að undanskildum málum sem var vísað frá á þeim grundvelli að kæra barst eftir að kærufrestur rann út?
     6.      Í hversu mörgum umræddra kærumála var málsmeðferðartími hjá nefndinni lengri en þrír mánuðir, sundurliðað eftir árum?
     7.      Hversu oft hefur Tryggingastofnun ríkisins höfðað dómsmál til að fá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hnekkt, annars vegar í málum á grundvelli laga um almannatryggingar, nr. 100/2007, og hins vegar á grundvelli laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.