Fundargerð 153. þingi, 120. fundi, boðaður 2023-06-07 19:40, stóð 19:40:42 til 21:35:40 gert 7 21:56
[prenta uppsett í dálka] [<-][->]

120. FUNDUR

miðvikudaginn 7. júní,

kl. 7.40 síðdegis.

Dagskrá:


Almennar stjórnmálaumræður.

[19:40]

Horfa

Umræðurnar skiptust í tvær umferðir og hafði hver þingflokkur átta mínútur í fyrri umferð og fimm mínútur í seinni umferð.

Röð flokkanna var þessi í báðum umferðum: Samfylkingin, Flokkur fólksins, Sjálfstæðisflokkur, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Vinstrihreyfingin -- grænt framboð og Miðflokkurinn.

Ræðumenn flokkanna voru eftirtaldir:

Fyrir Samfylkinguna töluðu í fyrri umferð Kristrún Frostadóttir, 3. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Oddný G. Harðardóttir, 8. þm. Suðurkjördæmis.

Fyrir Flokk fólksins töluðu Inga Sæland, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Guðmundur Ingi Kristinsson, 9. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, í fyrri umferð og Bryndís Haraldsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis, í seinni umferð.

Ræðumenn Pírata voru í fyrri umferð Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, og í seinni umferð Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru Ingibjörg Isaksen, 1. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og Jóhann Friðrik Friðriksson, 5. þm. Suðurkjördæmis, í þeirri seinni.

Fyrir Viðreisn töluðu í fyrri umferð Hanna Katrín Friðriksson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, og í þeirri seinni Sigmar Guðmundsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstrihreyfinguna -- grænt framboð töluðu Orri Páll Jóhannsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrri umferð og Jódís Skúladóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, í seinni umferð.

Fyrir Miðflokkinn töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 7. þm. Norðausturkjördæmis, í fyrri umferð og í þeirri seinni Bergþór Ólason, 8. þm. Norðvesturkjördæmis.

Fundi slitið kl. 21:35.

---------------