Ferill 528. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Nr. 5/153.

Þingskjal 849  —  528. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu rammasamnings um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja og samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2023.


     Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd rammasamning um fiskveiðar milli ríkisstjórnar Íslands og landsstjórnar Færeyja sem gerður var í Reykjavík 14. október 2022 og samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu árið 2023 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 7. og 8. desember 2022.

Samþykkt á Alþingi 15. desember 2022.