Ferill 779. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1182 — 779. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna.
Flm.: Þórarinn Ingi Pétursson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Stefán Vagn Stefánsson, Ingibjörg Isaksen, Halla Signý Kristjánsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Oddný G. Harðardóttir.
Alþingi ályktar að fela matvælaráðherra að setja af stað vinnu við heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna.
Greinargerð.
Í hinum dreifðari byggðum eru einstaka svæði einungis með einn dýralækni á vakt allt árið um kring, með því gríðarlega bakvaktaálagi sem því fylgir, og sums staðar á landinu eru eftirlitssvæðin svo stór að einn dýralæknir getur með engu móti sinnt starfi sínu. Skipulag vaktamála er á ábyrgð Matvælastofnunar. Það er hins vegar ljóst að stofnuninni hefur ekki tekist að uppfylla það hlutverk sitt að skipuleggja bakvaktir í samráði við dýralækna á öllum svæðum, og þar með tryggja nauðsynlega grunnþjónustu um land allt.
Dýralæknar eru meðvitaðir um skyldur sínar þegar kemur að því að hjálpa dýrum í neyð. Hins vegar er dýralæknum of oft gert ómögulegt að uppfylla þær starfsskyldur sem á herðar þeirra eru lagðar. Stjórnvöld í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi hafa öll sett af stað umfangsmikla vinnu við að greina vandann og þær áskoranir sem fylgja því að færri dýralæknar fáist í störf úti á landi og taki að sér bakvaktir. Afar mikilvægt er að farið verði í þá vinnu hér á landi og snýr markmið og efni tillögunnar að því að hrundið verði af stað heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna.