Ferill 782. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1433  —  782. mál.
2. umræða.



Nefndarálit með breytingartillögu


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar).

Frá minni hluta velferðarnefndar.


    Minni hlutinn tekur undir með meiri hlutanum um markmið frumvarpsins og leggur líkt og meiri hlutinn áherslu á að sameining stofnananna muni auka skilvirkni í málaflokknum. Fjölmenningarsetur hefur leikið mikilvægt hlutverk í málefnum innflytjenda og unnið með sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum með stuðningi og ráðgjöf. Þar hefur safnast upp reynsla og sérþekking sem ekki má glatast við sameiningu stofnananna.
    Þegar Fjölmenningarsetrið var stofnað með lögum árið 2012 voru erlendir ríkisborgarar með lögheimili hér á landi 25.444. Nú þegar leggja á stofnunina niður eru þeir orðnir 61.148 og vísbendingar um að þeim muni enn fjölga. Stöðugildum Fjölmenningarseturs hefur ekki fjölgað að sama skapi og hefur starfsemin lengst af glímt við fjárhagsvanda og mikið álag á of fáa starfsmenn.
    Undirbúningur vegna sameiningarinnar hefur staðið frá því í haust og samkvæmt upplýsingum frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu voru einungis tvær sviðsmyndir skoðaðar. Önnur sviðsmyndin fól í sér sameiningu Fjölmenningarseturs og Vinnumálastofnunar en hin sviðsmyndin fól í sér að sett yrði á fót ný sjálfstæð stofnun sem þjónusta myndi umsækjendur um alþjóðlega vernd, flóttafólk og innflytjendur. Það vekur furðu minni hlutans að ákvörðun um að leggja Fjölmenningarsetur niður virðist hafa verið tekin áður en farið var af stað með þarfa- og sviðsmyndagreininguna.
    Öllum umsagnaraðilum ber saman um að starfsfólk Fjölmenningarseturs hafi, á þeim rúma áratug sem setrið hefur starfað, unnið sér og setrinu inn dýrmætt traust og byggt upp þekkingu og reynslu sem ekki er sjálfsagt að muni yfirfærast til Vinnumálastofnunar við sameiningu. Vinnumálastofnun er vissulega þjónustustofnun en þar eru skilyrði fyrir þjónustu og viðurlögum beitt. Mikilvægt er að lögð verði á það mikil áhersla að Vinnumálastofnun byggi upp og vinni traust nýrra skjólstæðinga. Minni hlutinn saknar þess að sjá ekki neina áætlun um hvernig ætlað sé að vinna traust innflytjenda og flóttafólks til Vinnumálastofnunar. Til bóta væri að breyta nafni stofnunarinnar í samræmi við ný verkefni.
    Jákvæðni og væntingar um stærri og betri stofnun var ríkjandi meðal starfsmanna Fjölmenningarseturs í upphafi þegar hugmyndin um sameiningu kom fram. En þar sem sameiningarferlið gekk ekki eins og lofað var jókst óvissa starfsmanna um framtíð sína og verkefni Fjölmenningarseturs. Sárlega skorti á samskipti og upplýsingar frá ráðuneytinu og svo virðist að í engu hafi verið farið eftir því leiðarljósi um sameiningu ríkisstofnana sem sett eru fram í skýrslu fjármálaráðuneytisins um sameiningu ríkisstofnana og tengdar breytingar (2008). Minni hlutinn gagnrýnir ráðuneytið harðlega fyrir ófullnægjandi undirbúning við niðurlagningu stofnunar sem samkvæmt lögum á að starfa og er með lögbundið hlutverk.
    Lögbundið hlutverk Fjölmenningarseturs er yfirgripsmikið og tiltekið í lögum um málefni innflytjenda. Ráðuneytið á að sjá til þess að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu þar til Alþingi hefur ákveðið að flytja skuli verkefnin annað. Félags- og vinnumarkaðsráðherra mælti fyrir frumvarpi um sameiningu Fjölmenningarseturs og Vinnumálastofnunar 7. mars með gildistöku 1. apríl. Minni hlutinn gagnrýnir harðlega hversu seint málið kom fram og takmarkaða möguleika löggjafans til að meta stjórnsýslu og undirbúning flutningsins.
    Svo virðist sem ekki hafi verið farið eftir bestu ráðleggingum um sameiningarferli, þ.e. um að tilgreina skýrt markmið og rök fyrir sameiningu, um samráð til að afla stuðnings við sameiningu og ákvörðun um hana, um undirbúning og gerð samrunaáætlunar og um virka þátttöku starfsmanna og gerð áætlana um úttektir til að meta árangur og draga lærdóm. Auk þess hefur ekki verið gætt nægilega að mannlega þættinum við sameiningu en gæta þarf vel að honum eigi sameining að heppnast. Við formlega sameiningu er nauðsynlegt að endurskoða og setja ný markmið fyrir sameinaða stofnun og gera viðeigandi breytingar á ferlum, störfum, kerfum og aðstöðu. Jafnframt er nauðsynlegt að hefjast handa við að móta eina menningu fyrir vinnustaðinn svo að sameinuð stofnun virki sem ein heild líkt og bent er á í skýrslu fjármálaráðuneytisins um sameiningu stofnana.
    Þrátt fyrir að minni hlutinn gagnrýni harðlega hvernig staðið hefur verið að undirbúningi og ákvörðun um sameiningu telur minni hlutinn að betra sé að samþykkja frumvarpið með gildistöku 1. apríl en að fresta henni til að eyða þeirri óvissu sem starfsfólk Fjölmenningarseturs hefur þurft að búa við. Minni hlutinn hvetur til þess að sameiningarferlið innan Vinnumálastofnunar verði vandað og skýrt. Reynsla og þekking yfirfærist sem best og séð verði til þess að lögbundið hlutverk verði uppfyllt.
    Minni hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Fyrir 1. apríl 2025 verði birt úttekt á sameiningarferlinu og mat lagt á hvort markmiðum með sameiningunni hafi verið náð.

Alþingi, 27. mars 2023.

Oddný G. Harðardóttir,
frsm.
Guðmundur Ingi Kristinsson. Halldóra Mogensen.