Ferill 811. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1451  —  811. mál.




Svar


menningar- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn frá Viðari Eggertssyni um fulltrúa í sendiráði Íslands í Brussel.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Stendur til að skipa fulltrúa frá menningar- og viðskiptaráðuneyti í sendiráð Íslands í Brussel? Ef svo er, hvenær?

    Menningar- og viðskiptaráðuneytið hefur skipað fulltrúa ráðuneytisins í sendiráð Íslands í Brussel. Viðkomandi hefur störf þar í sumar.