Ferill 415. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1672  —  415. mál.
3. umræða.



Nefndarálit


um frumvarp til laga um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar.

Frá minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.


    Nefndin tók málið til umfjöllunar á ný milli 2. og 3. umræðu í því skyni að taka til nánari athugunar þá ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að fella jarðgas og kjarnorku undir flokkunarkerfi ESB fyrir sjálfbærar fjárfestingar og áhrif mögulegra málaferla vegna flokkunarkerfisins gagnvart Evrópusambandinu.
    Frumvarpið felur í sér innleiðingu í íslenskan rétt á ákvæði reglugerða Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2088 um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (SFDR-reglugerðin) og (ESB) 2020/852 um að koma á ramma til að greiða fyrir sjálfbærri fjárfestingu og um breytingu á reglugerð (ESB) 2019/2088 (Taxonomy-reglugerðin).
    Að mati minni hlutans verður að gera alvarlegar athugasemdir við innleiðinguna og reglugerðina sem hún byggist á.

Forsaga.
    Evrópusambandið hefur sett sér markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Sem þátt í aðgerðum til að ná samdrætti í losun hefur verið ráðist í fjölmargar aðgerðir sem snerta fjármálakerfið, m.a. breytingar á regluverki er varða sjálfbærar fjárfestingar. Hin svokallaða Taxonomy-reglugerð býr til ramma utan um sjálfbærar fjárfestingar. Markmið hennar er að styðja sérstaklega við þær fjárfestingar sem þjóna að lágmarki einu af sex nánari skilgreindum markmiðum, þ.e. að draga úr loftslagsbreytingum, aðlögun að loftslagsbreytingum, sjálfbær nýting auðlinda sjávar, umbreyting í hringrásarhagkerfi, mengunarvarnir og vernd og endurheimt vistkerfa.
    Við vinnslu málsins hjá Evrópuþinginu voru aftur á móti gerðar afar óheppilegar breytingar á því sem vinna gegn markmiðum reglugerðarinnar. Vegna þrýstings frá hagaðilum var skilgreiningum breytt á þann veg að fjárfestingar í kjarnorku annars vegar og gasorkuverum hins vegar voru felldar inn í skilgreininguna á sjálfbærum fjárfestingum. Málið varð þannig afar umdeilt innan Evrópuþingsins þó að reglugerðin hafi engu að síður tekið gildi. Ástæða andstöðunnar var einna helst sú að með skilgreiningu á jarðgasi annars vegar og kjarnorku hins vegar sem sjálfbærri lausn á loftslagsvánni gagnast reglugerðin mun verr til að ná markmiðum um samdrátt í losun og þýðir að óhreinn iðnaður mun hafa aðgengi að sama flokkunarkerfi og aðrir vistvænir orkugjafar. Eins er augljóst að gas- og kjarnorkunýting nær engum þeirra sex markmiða sem reglugerðinni er ætlað að uppfylla.
    Setning reglugerðarinnar hefur haft víðtæk áhrif þar sem fjöldi náttúruverndarsamtaka hefur sagt sig úr vettvangi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um sjálfbærar fjárfestingar í mótmælaskyni. Ríkisstjórnir Austurríkis og Lúxemborgar hafa lýst því yfir að þær hyggist láta reyna á lögmæti reglugerðarinnar fyrir Evrópudómstólnum auk þess sem evrópsk náttúruverndarsamtök hafa hafið málaferli vegna ákvörðunarinnar. Alls óvíst er hverjar afleiðingar þessara dómsmála verða.

Afstaða stjórnvalda og meiri hluta nefndarinnar.
    Málið var kallað inn til nefndar milli 2. og 3. umræðu til að fjalla um þá ákvörðun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins að fella jarðgas og kjarnorku undir flokkunarkerfi ESB fyrir sjálfbærar fjárfestingar. Óskaði nefndin eftir minnisblaði frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem því er lýst að óvíst sé hvaða beinu hagsmuni Ísland hafi af því að setja fram fyrirvara um hvort jarðgas- og kjarnorkuframleiðsla geti talist sjálfbær. Fram kemur einnig í minnisblaði ráðuneytisins: „Í því sambandi er rétt að minna á ströng skilyrði sem eru sett fyrir flokkun slíkra orkugjafa svo þeir teljist sjálfbærir í skilningi umræddra reglna. Eins og áður segir þá vinna Evrópuríki nú að því hörðum höndum að mæta orkuþörf sem áður byggðist m.a. á innflutningi á jarðgasi frá Rússlandi á sama tíma og orkuskiptum verður almennt hraðað. Á sama tíma er ljóst að íslensk stjórnvöld sækja einnig um tímabundnar lausnir vegna losunarkostnaðar í millilandaflugi.“ 1
    Þannig er ljóst að ráðuneytið telur hagsmuni Íslands betur varða með því að beita sér fyrir undanþágum frá álagningu losunarkostnaðar í millilandaflugi. Í því sambandi vill minni hlutinn árétta að stjórnvöld hvers tíma hafa í hendi sér að ákveða með hvaða hætti þau beita sér gagnvart samstarfsríkjum þegar kemur að alþjóðlegum aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Þessi forgangsröðun bendir því miður til þess að skammtíma fjárhagslegir hagsmunir gangi framar hagsmunum framtíðarkynslóða og baráttunni gegn loftslagsbreytingum í huga ríkisstjórnarinnar.

Afgreiðsla nefndarinnar.
    Þrátt fyrir miklar áhyggjur af innleiðingu reglugerðarinnar, yfirstandandi málaferlum og óvissu varðandi lögmæti hennar ákvað meiri hluti nefndarinnar að afgreiða málið með vísan til þess að í reglugerðinni séu gerðar ríkari kröfur til kjarnorku- og jarðgasvera: „Jarðgasver falli t.d. undir þann flokk að teljast umbreytingarstarfsemi, þ.e. þau verða að stefna að því að skipta jarðgasi út fyrir endurnýjanlega orku eða orku með lága kolefnislosun fyrir árið 2035. Þá þurfi kjarnorkuver að uppfylla ákveðin skilyrði um öryggi og staðlaða meðhöndlun úrgangs.“ 2
    Jafnvel þó að slíkir hvatar kunni að vera jákvæðir gagnvart þeim iðnaði sem þegar er til staðar þá er ekki þar með sagt að það sé rétt að flokka jarðgas og kjarnorku sem sjálfbærar fjárfestingar til framtíðar. Það er einfaldlega blekkjandi fyrir almenning og þjónar ekki því markmiði sem sjálfbærum fjárfestingum er ætlað að þjóna.
    Réttara hefði verið að kanna í þaula hvort hægt væri að hreinsa reglugerðina af hagsmunagæslu gas- og kjarnorkuframleiðenda við innleiðingu. Í sínu endanlega formi þjónar Taxonomy-reglugerðin einfaldlega ekki því mikilvæga markmiði að stuðla að sjálfbærum fjárfestingum, heldur getur hún aukið upplýsingaóreiðu og grænþvott. Verulegar efasemdir eru líka uppi um það hvort reglugerðin standist markmið Parísarsáttmálans. Það er miður að meiri hluti nefndarinnar hafi ákveðið að þrýsta málinu áfram fremur en að staldra betur við, vinna að lausnum og nýta þannig tækifærið til að þrýsta á grænar umbreytingar.

Alþingi, 2. maí 2023.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


1     www.althingi.is/altext/erindi/153/153-4213.pdf
2     www.althingi.is/altext/153/s/1658.html